Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 28
að rannsaka hæfileika hans
1974 sýndu tilraunir teknar
upp á myndband stöku sinn-
um afdráttarlaust ótrúleg fyrir-
brigði, svo sem þegar skeið
bognar án þess að hún sé svo
mikið sem snert. Önnur tilraun
sýndi að sálkraftur Silvio
gat haft mælanleg áhrif
á rafmagnstæki. Og til er
teskeið með viðsnúnu haldi en
Silvio „bræddi" brotin öfugt
saman samkvæmt beiðni at-
hugandans, eftir að skeiðin
hafði brotnað milli fingra hans.
Þó myndband sé ekki til af
þessu síðastnefnda er skeiðin
athyglisvert sönnunargagn,
ekki samt afdráttarlaust
sönnunargagn PK hæfileika,
nema ef til vill fyrir sjónarvotta,
því svona skeið með viðsnúnu
haldi mætti með nokkurri
vinnu steypa í sérstöku móti.
Merkja yrði hlut til slíkrar til-
raunar með óyggjandi hætti og
helst hafa myndbandsupptöku
af framkvæmdinni, þó slíkt
nægði jafnvel ekki harðsvíruð-
ustu gagnrýnendum, sem
frekar kynnu að trúa því að
rannsóknafólk falsaði mynd-
i en að trúa því sem þeir
ekki að geti verið rétt.
í myndlist sinni reynir Silvio að
veita innsýn í andlegu sviðin,
sem hann skynjar í tengslum
við fjarhrifafyrirbærin.....um
likamann streymir hamingjutil-
finning. Hin venjulegu lögmál
gilda ekki lengur, allt virðist
hægt... “ segir Silvio.
■>ijriiul/qiluouppiunui oyua iconciuai uuyiid dll öl ICI llI iycfí, ItfbKtflOdl, btífll
haldið er milli vísi- og þumalfingurs, sjást hrökkva í tvennt, jafnvel stöku
sinnum verða
heilar aftur,
í einu tilfelli
með viðsnúnu
haldi.
að pappírinn hafi verið búinn
til í móti smeygðu inn í álfern-
inginn. Það síðastnefnda er
leið sjónhverfingamannsins
sem nefndur var hér að
framan. Að búa til álferninginn
á samsvarandi hátt verður að
telja útilokað vegna hins háa
hitastigs sem til þyrfti, einnig
vegna yfirborðs og annarra
efniseiginleika. Bæði álið og
pappírinn sýna sig nefnilega
að vera eins og samsvarandi
verksmiðjuframleidd vara, að
mati kunnáttumanna, og án
//.. . eru Mkvaddir sérfræðingar
sammála: Feuiingamir hans Sihrio
ættu einfaldlega ekki að geta
verið HI.JJ
JJAð beygja skeiðar, eins og Geller
oft gerii, sem haldii var milli
tveggja fingra, reyndist honum
oftast auiveh.jj
gæfra fyrirbrigða eins og fjar-
hrifa á efni sem gera ferning-
ana, sem Silvio bjó til dag
nokkurn í desember 1987, svo
sérstaka. Verður hér nú alfarið
fjallað um þá en þeim sem vilja
fræðast um rannsóknir á þess-
um hæfileikaríka sálkrafta-
miðli vísað á skýrslur í þýska
parasálfræðitímaritinu Zeit-
schrift fur parapsychologie
und Grenzgebiete der Psyc-
hologie, Freiburg in Breisgau,
1978, s. 1-46 og 1981 s. 117-
121.
„ALLT VIRÐIST VERA
HÆGT . . .“
Sönnunargildi hluta, sem ekki
ættu að geta verið til, hafði
komið til umræðu meðan
rannsóknir á Silvio stóðu yfir.
Sú hugmynd blómstraði síðan
skyndilega dag nokkurn í des-
ember 1987 á vinnustað Sil-
vio. Hann greip til hluta sem
við höndina voru, álpappír
utan af matarpakkanum,
pappírsblaö úr hefti minnis-
miða. Úr hvortveggja skar
hann ramma með ytri kanti
u.þ.b. 2,5 cm, þeim innri u.þ.b.
1,4 cm.
Eftir að hafa skorið pappírs-
ferninginn í sundur og smeygt
honum inn í álferninginn hélt
hann í u.þ.b. 10 mínútur um
skurðinn með þumal- og vísi-
fingri og pappírinn varð heill
aftur.
Margháttaðar rannsóknir
hafa verið framkvæmdar til
þess að sýna fram á annað-
hvort ummerki samskeyta eða
Tækni sem beitt hefur verið:
Gegnum lýsing með útfjólu-
bláu Ijósi og með geislavirkni,
skoðun í þrívíddarsmásjá
bæði í venjulegu og pólariser-
uðu Ijósi, endurskin yfirborðs í
laserljósi, skoöun efnisins í
rafeindasmásjá.
Merki um samskeyti eða að
álið eða pappírinn séu
„heimatilbúin" finnast ekki. Til
dæmis er pappírinn með öll
sérkenni samskonar verk-
smiðjupappírs, mjög jafn á
þykkt, trefjarnar liggja í sömu
átt, sérstakt sjónvirkt yfir-
borðslag, sem allt útilokar til-
lögu sjónhverfingamannsins
um heimatilbúinn pappír.
Margháttaðar tilraunir til
þess að skeyta ál eða pappír
af sömu gerð saman án um-
merkja hafa verið fram-
kvæmdar, en án árangurs
hingað til.
5000 ÞÝSK MÖRK
í VERÐLAUN
Þýska tímaritið ESOTERA
bauð í mars sl. fimm þúsund
þýsk mörk í verðlaun, jafnvirði
um 160 þús. ísl. króna, þeim
sem fyrstur gæti sýnt fram á
hvernig hægt sé að búa fyrir-
brigði eins og þessa ferninga
Silvios til á tæknilegan máta,
það er án sálkraftavirkni.
Lesendur, sem áhuga hafa,
geta fengið sendar efnisprufur
úr samskonar pappír og áli,
segir ritstjóri Esotera.
Ef einhver lesandi Vikunnar
vildi spreyta sig, þá gjörið svo
vel að hafa samband við
greinarhöfund í pósthólf 8109,
128 Reykjavík, eða símleiðis
við ritstjórn Vikunnar. □
28 VIKAN 12. TBL. 1991