Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 17
ÍSLENDINGAR
FÍNIR FARÞEGAR
Bergþóra Tómasdóttir hefur starfað sem
fararstjóri á Benidorm í fimm ár. Hún segir
ekkert mannlegt vera fararstjóra óviðkom-
andi og að fararstjóri geti þurft að takast á
við allt frá fæðingu til dauða. Hvaða ábend-
ingar hefur hún til þeirra fjölmörgu Frón-
búa sem ætia að skyggnast um höfin sjö?
„Fyrst og fremst vil ég leggja áherslu á það
við fólk að koma á kynningarfundina. Það
skiptir svo miklu máli fyrir ferðina í heild að fólk
fái réttar upplýsingar í upphafi ferðar. Feröa-
skrifstofan Veröld, sem ég vinn fyrir, gefur að
vísu út bækling með öllum upplýsingum, sér-
staklega fyrir þá sem ekki koma á fundina, en
helst vil ég sjá alla mína farþega á kynningar-
fundinum," segir Bergþóra sem komin verður
til Spánar þegar þetta birtist.
- Hvernig er það, kemur ekki ýmislegt
spaugilegt upp á i þessu starfi?
„Ég man eftir sætri sögu en hún var þannig
að með mér í ferð var indæl, eldri kona. Þegar
farið er til Benidorm er lent í Alicante og ekiö
þaðan í klukkutíma til Benidorm. Svo segir
þessi kona við mig daginn eftir: Valencia. Ætl-
ar þú ekki að segja Valencia við mig? Valenc-
ia, segi ég, en hvers vegna? Nú, þýðir það ekki
velkomin á spænsku? spurði konan þá.
Þá hafði hún séð fjölmörg skilti á leiðinni milli
Alicante og Benidorm sem á stóð Valencia,
vegna þess aö Valencia er næsta stórborg.
Hún var því alveg sannfærð um að Valencia
gæti ekki þýtt neitt annað en velkomin og var
hæstánægð með gestrisni Spánverja."
- En er nokkuð um að saklausir íslendingar
fari illa út úr f grandaleysinu?
„Það segir sig sjálft að það býður hættunni
heim að gera eins og sumir íslenskir karlmenn
eiga til í sakleysi sínu, að vera með seðlavesk-
ið standandi upp úr rassvasanum. Við farar-
stjórarnir vörum að vfsu sérstaklega við þessu
og bendum á að peningar séu betur geymdir í
brjóstvasa á skyrtu. Sömuleiðis ráðleggjum við
kvenfólki að setja hliðartöskurnar alltaf yfir
aðra öxlina og láta lásinn snúa að líkamanum.
Þeir fingralöngu eru ævintýralega snarir í
snúningum og gera allt frá að skera á töskuól-
ar til þess að taka peningaveski upp úr töskum
sem hanga kæruleysislega á öxl, til dæmis í
biðröðum eöa almenningsvögnum."
GÆTIÐ ÞESS AÐ BERA VEL Á BÖRNIN
- Kann fólk ekki alveg á sólina núorðið og tek-
ur sér jafnvel siesta í hádeginu eins og heima-
fólk?
„Á heitasta tímanum mælum við með því að
fólk kaupi sér sólfilter 16 og sérstaklega að
bera vel á börnin. Maður hefur séð óhugnan-
legar blöðrur á öxlum barna, alveg ofan í kjöt,
og þetta þýðir vitanlega að fríið er allri fjöl-
■ Bergþóra Tómasdóttir
segir íslendinga vilja í æ
ríkari mæli fræðast meira
um sögu Spánar, hefðir
og menningu í stað þess
að sitja öllum stundum
við sundlaugina.
■ „Ágætt fyrir okkur
íslendinga að haga okkur
eins og Spánverjar á
heitasta tímanum og taka
hreinlega siesta milli tólf
og tvö. “
skyldunni ónýtt. Sólvörnin þvæst af krökkunum
þegar þau eru á hoppi upp úr og ofan í laugina
stanslaust í átta klukkutíma. Ég bendi yfirleitt
fólki á að klippa af gömlum bol til að hlífa litlu
öxlunum fyrstu dagana. Svo er mjög gott að
nota hreina jógúrt á sólbruna; það liggur við að
maður sjá blöðrurnar hjaðna. Fólk þarf nánast
að fara í jógúrtbað, en daginn eftir má segja að
bruninn sé allur farinn úr húðinni.
Svo er ágætt fyrir okkur að haga okkur eins
og Spánverjar á heitasta tímanum og taka
hreinlega siesta milli tólf og tvö. Þann tíma má
nýta til að fá sér léttan hádegisverð eða hrein-
lega til að leggja sig og njóta sín þá enn betur
fram eftir kvöldi. Þeir sem ekki geta hugsað sér
að missa sólargeisla úr ættu að'gæta þess
sérstaklega aö vera ávallt með hatt á höfði og
þetta á ekki eingöngu við um börnin. Sólsting
fylgja uppköst, niðurgangur og mikil vanlíðan
og viðbúið er að sá sem fær sólsting missi
hreinlega úr sólarhring eða meira."
- Nú er svipaðs hreinlætis gætt við Miðjarð-
arhafið og hér heima. Er ekki alveg óhætt að
borða hvað sem er þarna suður frá?
„Sú gamla íslenska hjátrú að það sé allra
meina bót aö fá sér koníak eða Magno á hverj-
um morgni og fólk sé þá undanþegið maga-
kveisum alla ferðina á ekki við rök að styðjast.
Þegar fólk fær í magann á Spáni er það í fæst-
um tilvikum vegna einhvers sem það hefur
borðað heldur yfirleitt vegna einhvers sem það
hefur drukkið. Þá á ég ekki endilega við of-
neyslu áfengis heldur gos með ísmolum, sem
fólk teygar í sig. Maginn gerir hreinlega upp-
reisn við aö láta kæla sig svona niður og hitna
á víxl mörgum sinnum á dag. Á heitasta tíman-
um verður fólk að drekka vatn og það að
minnsta kosti tæpa tvo lítra á dag. Bjórnum
skilar maður svo fljótt til baka að líkaminn nær
ekki að vinna neinn vökva úr honum. Fólk skil-
ur oft ekkert í því hvað það er slappt og syfjað
en það er þá vegna þess að það vantar vatn
og salt líkamans."
LÍTIÐ UM AÐ ÍSLENSKAR STÚLKUR
LÁTI BLEKKJA SIG
- Hvernig er með samskipti kynjanna á
strandstöðum? Getur ekki veriö hætta á alls
kyns óæskilegum fylgikvillum í kjölfar þeirra?
„Öll umræða um alnæmi liggur alveg niðri á
Spáni, nákvæmlega eins og hér. Þeir voru
með sína auglýsingaherferð í gangi fyrir þrem-
ur árum, alveg eins og við. Núna er ekki minnst
á þetta mál. En mér finnst íslenskar stelpur al-
mennt vera á varðbergi gagnvart strandljónun-
um og lítið um að þær láti blekkjast út í ein-
hvern sumarfrísrómans. Oft koma æðislegar
17-18 ára skvísur saman í hóp, í nýjum dress-
um á hverju kvöldi og eru kannski rosalegar
gellur út á við en litlar í sér og láta ekki hafa sig
út í neitt. Ég hef líka oft sagt við svona stelpur
að þær verði að gera sér grein fyrir því að þeg-
ar þær fari heim eftir þrjár vikur sé önnur komin
í þeirra stað samdægurs. Svo spyr ég þær líka
hvort þær ætli aö flytja til Benidorm og búa þar
allt sitt líf og vera bara í eldhúsinu. Mér finnst
það hreinlega skylda mín aö skipta mér aðeins
af þeim. Annars finnst mér áberandi hvað
þessir ungu krakkar sem koma eru fínir og
sætir og haga sér vel. Það er alltaf verið að tala
um aö íslendingar verði kolvitlausir séu þeir
ekki heima hjá sér en ég lít nú bara á Englend-
ingana og Svíana og segi að íslendingar séu
hátíð hjá þessum þjóðum. íslendingar eru fínir
farþegar, það er ekkert hægt að kvarta undan
þeim. Flestir eru jákvæöir og með góða skapið
f farteskinu og fólk, sem er vant að koma til
Frh. á bls. 19
12.TBL.1991 VIKAN 17