Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 58
Eitdurlcoitia
Lizu Minitelli
Söngkonan og leikkonan
Liza Minnelli (móöir
hennar var stórleikkonan
Judy Garland) er loks að ná
sér eftir margra ára baráttu viö
Bakkus. Hún leikur nú í nýrri
mynd sem heitir Stepping
Out, undir leikstjórn hins
kunna Lewis Gilbert sem
færöi okkur grátbroslegar
myndir eins og Educating
Rita og Shirley Valentine.
Myndin Stepping Out á að
boða endurkomu Lizu Minn-
elli á hvíta tjaldið. Hver man
ekki eftir frábærri frammistöðu
Lizu í myndinni Cabaret? En
þar með er allt upptalið. Ýmsar
myndir með henni, eins og
Lucky Lady, New York, New
York, Arthur, Arthur 2-On
the Rocks og Rent a Cop,
gengu illa eða floppuðu eins
og sagt er í kvikmyndaheimin-
um.
Stepping Out er gaman-
mynd, söngvamynd og
dansmynd. Þetta á að vera
konumynd eins og þær gerast
bestar. Til gaman má geta
þess að Liza er gift leikstjóran-
um Norman Jewison sem
gerði myndirnar In the Heat of
the Night og Moonstruck. □
4 Hin
broshýra
Liza Minnelli
í nýjustu
mynd sinni,
Stepping
Out.
Hjóna-
djöfullinn
Nicholas
Cage að
hremma
hina fögru
Eriku
Anderson í
myndinni
Zandalee.
Þetta er út
í Hróa
Á þessu ari verða syndar fjorar
myndir um Hróa hött - þann
bogfima fra Skírisskógi.
Patrick Bergin. Kevin Cost-
ner. Alec Baldwin og Jason
Connery leika i myndum sem
heita Robin Hood, Robin
Hood, Prince of Thieves,
Adventures of Robin Hood
og Robin Hood of Sher-
wood. Þetta er nú alveg ut í
Hróa hött. □
LU
LU
Síðosti tangó
í New Orleans
Judge Reinhold er sak-
lausi og góðlátlegi leikarinn
sem við þekkjum öll úr Bever-
ly Hills þáttaröðinni. Auk
þess hefur hann leikið í gam-
anmyndinni Vice Versa sem
gerði það gott hér á landi.
Judge Reinhold vill líka breyta
til og fást við alvarlegri
hlutverk. Við fáum að sjá hann
í djarfri ástarmynd sem hingað
til hefur gengið undir ýmsum
titlum. Fyrst átti myndin að
heita Zandalee, síðan Adios,
þar næst Adios Thierry en
hefur nú hlotið hinn uppruna-
lega titil, Zandalee. Auk Judge
Reinhold leika í myndinni
hinn villti og tryllti Nicholas
Cage (Wild at Heart) og ný-
stirnið frá Tulsa í Oklahoma,
Erika Anderson. Þetta á ekki
að vera mynd í stíl viö 91/2
Weeks, Wild Orchid né Em-
manuelle myndirnar. Zanda-
lee hefur alvarlegan undirtón,
er ástarmynd í dramatískum
stíl og fjallar um misheppnað
Ijóðskáld (sem Judge Rein-
hold túlkar á eftirminnilegan
hátt) frá Suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Erika Anderson leik-
ur eiginkonu Ijóðskáldsins,
kynþokkafulla og fagra.
Nicholas Cage leikur villtan
listmálara sem á eftir að eyði-
leggja hjónabandið. Sannkall-
aður hjónadjöfull. Þetta er æsi-
legur söguþráður þar sem
mannlegum tilfinningum lýtur
saman. Bíóborgin mun sýna
myndinasíðaráþessuári. □
56 VIKAN 12. TBL. 1991