Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 36
ÞORDIS BACHMANN ÞYDDI
’Y
KYNNGIMÖGNUÐ FRAMHALDSSAGA EFTIR
MEISTARA SPENNUSAGNA - STEPHEN KING
AÐUR BIRT
John Smith er kennari í smábæ í
Bandaríkjunum. Hann verður fyrir
höfuðhöggi sem barn og fær eftir það
,hugboð‘ öðru hverju - um hvar týnda
hluti sé að finna eða að einhver verði
fyrir óhappi.
John og Sara, vinstúlka hans, fara
kvöld eitt á héraðshátíð þar sem John
vinnur fjárfúlgu í lukkuhjólinu. Meðan
á vinningshrinu hans stendur fylgist
Sara með honum. Hann leggur aftur
og aftur undir á sama reitinn og svo
virðist sem hann viti hvar bendillinn
muni stansa næst.
Meðan á þessu stendur er eins og
Johnny sé í leiðslu - augu hans eru
köld og fjarræn og á andliti hans er
hörkusvipur sem hún er ekki vön að
sjá.
Johnny lendir í hroðalegu bílslysi á
leið heim af hátíðinni. Hann fellur i
dauðadá sem varir í fjögur og hálft ár.
Meðan hann sefur kynnumst við Greg
Stillson, borgarstjóra í smábæ í New
Hampshire. Einnig er leiddur til sög-
unnar morðingi í Castle Rock - litlum
bæ stutt frá sjúkrahúsinu sem Johnny
liggur á.
Þegar Johnny vaknar úr dáinu er
greinilegt að hann getur öðlast vit-
neskju um líf fólks og hugsanir með
þvi einu að snerta það. Hann er kom-
inn í þá hræðilegu aðstöðu að fólk
bæði sækist eftir vitneskju hans og
óttast hann sem einhvers konar furðu-
fyrirbæri.
SJÖTTI HLUTI
* 6 *
Tíu dögum eftir fyrstu aðgerðina og tveimur vikum
áður en framkvæma átti þá næstu leit Johnny upp
úr bókinni sem hann var að lesa - All the Pres-
ident's Men eftir Woodward og Bernstein - og sá
Söru standa i dyragættinni, Hún horfði hikandi á
hann.
„Sara,‘‘ sagði hann. „Þetta ert þú, er það ekki?"
Hún andaði frá sér óstyrk. „Jú. Það er ég,
Johnny."
Hann iagði bókina frá sér og horfði á hana. Hún
var fallega klædd, í Ijósgrænum hörkjól og hún
hélt lítilli brúnni tösku fyrir framan sig eins og
skildi. Hún var búin að lýsa lokk í hárinu og það
fór henni vel. Það fékk hann einnig til að finna
skarpan afbrýðisemisting - hafði þetta verið
hennar hugmynd eða mannsins sem hún bjó með
og svaf hjá? Hún var fögur ásýndum.
„Komdu inn,“ sagði hann. „Komdu og fáðu þér
sæti.“
Hún gekk yfir herbergið og skyndilega sá hann
sjálfan sig eins og hún hlaut að sjá hann - of hor-
aður, líkaminn siginn út á aðra hlið í stólnum við
36 VIKAN 12. TBL. 1991