Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 64
ÞORSTEINN EGGERTSSON TÓK SAMAN
STÓRTÓNLEIKARNIR Á KAPLAKRIKA:
SEXT1UPÚSUND VATTA
PUNGAROKK
Það eru ekki aðeins Poi-
son, Slaughter, Thund-
er og Quireboys sem
koma frá útlöndum til að leika
á hljómleikum í Hafnarfirði 16.
júní. Mikið hefur verið fjallað
um þessa hljómleika í erlend-
um fjölmiðlum, til dæmis mús-
íktímaritum og á sjónvarps-
stöðinni MTV. Þannig komst til
dæmis Eiríkur Hauksson á
snoðir um viðburðinn. Eiríkur
er orðinn vel þekktur í Noregi
og víðar sem Eric Hawk,
söngvari hljómsveitarinnar
Artch sem nú er ekki aðeins
leiðandi þungarokksveit á
Norðurlöndum heldur hefur
líka vakið heilmikla athygli
beggja vegna Atlantshafsins.
Því til sönnunar eru hæsta
einkunn sem tímaritið Kerrang
gefur hljómsveitum og ekki
síðri umfjöllun ( Metal Force.
Þar að auki er Eiríkur farinn að
heyrast mikið á útvarpsstöðv-
um vestanhafs.
Þegar hann heyrði hvað til
stóð á Kaplakrika vildi hann
óður og uppvægur fá að taka
þátt í fjörinu. Norsku félagarnir
hans, þeir Brent Jansen
(bassi), Gill Neil (gítar), Cat
Andrew (gítar) og Jack James
(trommur), voru alveg sama
sinnis. Ekki er víst að nýjasta
plata hljómsveitarinnar, For
the Sake of Mankind, sé fáan-
leg I verslunum hér á landi í
bili, þar sem Bandaríkja-
markaður virðist gleypa í sig
hvert einasta nýtt upplag
hennar, en fyrsta platan, Anot-
her Return to Church Hill, gæti
fengist í plötuverslunum
hérna.
BULLET BOYS VILDU
ÓLMIR KOMA
Bandaríska hljómsveitin
BulletBoys hafði líka frétt af
Kaplakrikahljómleikunum fyrir-
huguðu (hjá ameríska MTV)
og hætti ekki að nauða fyrr en
samþykkt var að hún kæmi
hingað líka. Reyndar þurfti
ekki mikið nauð því hljóm-
sveitin er bæði mikið spiluð og
virt í Bandaríkjunum þótt hún
sé aðeins tveggja og hálfs árs
gömul. Nafnið (Byssuskota-
strákar) er skírskotun úr heimi
teiknimyndanna. Þar standa
söguhetjurnar alltaf upp
óskaddaðar þótt þær hafi
hrapað fyrir björg eða jafnvel
orðið fyrir vélbyssuskothríð.
Sömu sögu er að segja um
meðlimi hljómsveitarinnar.
Þeir hafa gengið í gegnum alls
konar hremmingar á leið sinni
til frægðarinnar - en hafa
staðið allt af sér óskaddaðir. (
BulletBoys eru söngvarinn
Marq Torien, gítarleikarinn
Mick Sweda, bassaleikarinn
Lonnie Vencent og trommar-
inn Jimmy D’Anda. Strákarnir
eru sagðir skemmtilegir á sviði
enda telja þeir markmið sitt
vera að koma fólki á flug út í
aðrar víddir þegar það hlustar
á tónlist BulletBoys.
Þeir segjast ekki eiga neinar
fyrirmyndir þótt sumir þykist
skynja í músíki þeirra áhrif frá
Led Zeppelin, Lynnyrd
Skynnyrd, ZZ Top og Van
Halen. Og þótt milljónir hafi
þegar selst af plötum með
þeim segjast þeir kæra sig
kollótta. Þeir hafa verið kallaðir
„kolrugluðu Kaliforníustrák-
arnir“ og líkar það ágætlega.
„Ef útvarpsstöðvarnar spila
62 VIKAN
12. TBL. 1991