Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 67
ÞUNGAROKK
Frh. af bls. 63
þarna ómetanlegt tækifæri til
aö koma tónlist þeirra á fram-
færi erlendis. Aö vísu leggja
Bubbi og Rúnar ekki mikið upp
úr frægðardraumum fyrir sjálfa
sig en þeir binda miklar vonir
við Guðmund Pétursson sem
þeir telja að eigi fullt erindi á
heimsmarkaðinn. Hann leikur,
með GCD í nokkrum lögum.
GCD kynnir lög af samnefndri
plötu sem kemur út daginn eft-
ir hljómleikana en auk þess
verða flutt þekkt lög úr ferli
Utangarðsmanna, Bubba og
Rúnars.
Þegar síðast fréttist var ekki
alveg vitað hvort Risaeðlan
getur komið því við að spila á
hljómleikunum en verði hún
með verða þarna einar átta
hljómsveitir. Verð á aðgöngu-
miðum er 5.500 krónur sem
þýðir þá 687,50 krónur á
hverja hljómsveit.
ÁRLEGUR VIÐBURÐUR?
Reiknað er með að hljóm-
leikarnir geti staðið undir sér ef
sjö þúsund aðgöngumiðar
seljast. Ef það tekst er mein-
ingin að gera svona rokkhátíð
að árlegum viðburði því að ís-
land er orðið vel kynnt í rokk-
heiminum erlendis. Ef allt
gengur að óskum gæti Hafn-
arfjörður því orðið álíka þekkt-
ur sem rokktónleikabær og
Hróarskelda í Danmörku, svo
að dæmi sé tekið. Þórður Sig-
friðsson hjá Rokk hf. sagði að
styrkur hljóðkerfisins væri
60000 vött. Sextiu - þúsund.
Það þýðir þó ekki að hávaðinn
verði eftir því enda myndu þá
eyru þeirra sem næstir eru
hljómsveitunum hreinlega
fuöra upp. Á hinn bóginn verð-
ur hljómburðurinn þéttari, ná-
kvæmari og betri en menn
hafa nokkurn tíma kynnst hér
á landi og kemur úr 80 hátölur-
um á tveim hæðum á sérstök-
um, átta metra löngum pöllum,
sitt hvorum meginn við 24
metra langt sviðinu. Það eru
40 metrar alls.
Uppistaðan í Ijósabúnaðin-
um eru 350 kraftmikil kastljós
og í viðbót 120 Ijós sem snúa
að áhorfendum en alls vegur
hljóð- og Ijósabúnaðurinn 64
tonn. Sextíu og fjögur þúsund
kíló ef ykkur skyldi koma það
við.
ÖFLUGT ÖRYGGI
Öryggisgæsla verður mjög
öflug; 150 manns frá FH og 40
manns frá Listahátíð Hafnar-
fjarðar auk lögreglu og ann-
arra öryggisvarða. Þá eru
ótaldir lífverðir hljómsveit-
anna. Leikvangurinn verður
opnaður á hádegi og reiknað
er með að hljómleikarnir hefjist
um tvöleytið og standi til mið-
nættis. Stórum gámum verður
hlaðið kringum Kaplakrikavöll
og rækilega séð til þess að
enginn geti svindlað sér inn.
Þar sem ekki er hægt að
ætlast til að allir hljómleika-
gestir hafi úthald til að hlusta á
dúndrandi rokk í tíu klukku-
tíma verða gerðar ráðstafanir
til að fólk geti komið og farið
að vild en auðvitað er líka
reiknað með að þarna verði
fullt af fólki sem vill ekki missa
af neinu. Því verða gerð hæfi-
leg hlé meðan skipt er um
hljómsveitir. Á meðan geta
áhorfendur að minnsta kosti -
þvegið sér um hendurnar.
Þess vegna verður veitinga-
sala á svæðinu allan tímann,
snyrtiaðstaða og annað sem til
þarf.
UPPTÖKUTÆKI
HARÐBÖNNUÐ
Rétt er að taka fram að
glerflöskur, plastflöskur og
dósir verða fjarlægðar af gest-
um þótt hljómleikarnir séu alls
ekkert yfirlýst bindindismót.
Þetta verður gert til að koma í
veg fyrir slysahættu og of mik-
ið rusl. Aftur á móti getur hver
sem er haft með sér „nesti“ í
lokuðum plast- eða pappamál-
um. Ekki verður öðrum leyft að
koma með vandaðar mynda-
vélar en Ijósmyndurum fjöl-
miðlanna, þótt ekki verði am-
ast við því að fólk taki með sér
ódýrar myndavélar. Hins veg-
ar er stranglega bannað að
koma með upptökutæki til að
taka tónlistina upp. Það er
reyndar bannað á hljómleikum
um víða veröld.
FÖRÐUNARMEISTARINN
BORGARKRINGLUNNI AUGLÝSIR:
■ Förðunarnámskeið
Kennari: Lína Rut, tvöfaldur íslandsmeistari í förðun
■ Förðun við öll tœkifœri
FÖRÐUNARMEISTARINN
Kringlunni 4-6. Sfmi 67 7280.
12. TBL. 1991 VIKAN 65