Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 2
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, rithöfundur og leikstjóri, ræðir í hjartans
einlægni við Jónu Rúnu Kvaran um starf sitt og eigin persónu. Sjá blaðsíðu 6.
5 ÞORGERÐUR TRAUSTA
segir okkur frá því að þessu sinni
þegar kirkjukórnum hennar var boð-
ið á kóramót í Stavangri í Noregi.
12 FRAMHJÁHALD
( síðasta tölublaði var rætt við tvær
konur sem hafa haldið við kvænta
menn. Sömuleiðis var rætt við sál-
fræðing um þetta efni. ( þessu blaði
og því næsta birtast viðtöl tii viðbótar
við konur sem eiginmennirnir yfir-
gáfu vegna annarrar konu. Enn fleiri
konur hafa haft samband við Vikuna
eftir að fyrsti hlutinn birtist - en hve-
nær þorir fyrsti karlmaðurinn að tjá
sig um ástæður framhjáhalds?
14 FARARSTJÓRAR
segja frá starfi sínu í þessari Viku og
gefa lesendum holl ráð varðandi
utanlandsferðir og þá einkum sólar-
landaferðir.
19 ÆVINTÝRI VERULEIKANS
Anna S. Björnsdóttir mun í sumar
skrifa stutta pistla í Vikuna í léttum
dúr og þá einkum um ferðalög.
20 HÁLF-ÍSLENSK í
PHANTOM OF THE OPERA
Blaðamaður Vikunnar hitti að máli
sænsk-íslenska stúlku í Hamborg
og sagði hún frá ævintýralegu bak-
pokaferðalagi sinu um Þýskaland í
atvinnuleit. Hún dansar nú í vinsælli
óperu Andrews Lloyd Webber.
24 BRÚÐUR MÁNAÐARINS
Vikan og Kodak Ektachrome fara nú
af stað með samkeppni milli Ijós-
myndara um bestu brúðarmyndina.
Keppni sem færir bæði Ijósmyndara
og brúði verðlaun.
26 SÉRSTÆTT
SÖNNUNARGAGN
Greint frá furðulegu fyrirbrigði um
fjarhrif á efni, sem vísindamenn
standa ráðþrota frammi fyrir. Er
hverjum þeim heitið háum fjárupp-
hæðum sem komið getur með lausn
gátunnar.
30 UNDIRFÖT
fyrir konur af öllum stærðum og
gerðum voru sýnd viðskiptavinum
verslunarinnar Misty nýverið. Vikan
var þar.
I þessu tölublaði Vikunnar eru hattar til umræöu á tveimur stöðum. Svo kann ein-
mitt að virðast að á þessari mynd sjáist Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, deildar-
og markaðsstjóri Flugleiða, og eiginkona hans, Margrét Zophaníasdóttir, hug-
leiða kaup á nýju höfuðfati. Svo er þó ekki. Þau eru hér að virða fyrir sér
demantaprýdda kórónu á safni í Amsterdam. Á milli þeirra stendur Margrét
Hauksdóttir deildarstjóri upplýsingadeildar Flugleiða. Sjá grein um nýjan áfanga-
stað Flugleiða á blaðsíðu 52.
32 OFBELDI f KVIKMYNDUM
Þórdís Bachmann skrifar meiningu
sína um það takmarkalausa ofbeldi
sem kvikmyndaáhorfendur verða
vitni að.
36 SÝNIR
Sért þú ekki þegar farinn að fylgjast
með framhaldssögunni kynngi-
mögnuðu eftir Stephen King auð-
veldum við þér að setja þig inn í það
sem áður hefur gerst með stuttum
og skýrum útdrætti. Þú getur ekki lát-
ið þessa mögnuðu sögu framhjá þér
fara.
39 LÉTT KROSSGÁTA
41 STJÖRNUSPÁ
46 JÓNA RÚNA KVARAN
svarar bréfi frá fimmtán ára stúlku,
sem segist vera í vandræðum.
Henni finnst hún undir of strangri
gæslu móður sinnar.
49 KROSSGÁTAN
50 MYNDASÖGUR
51 MATARUPPSKRIFTIR
Meistarakokkarnir í Framanda færa
okkur uppskriftir að pönnukökutertu
með bananasúkkulaðikremi annars
vegar og karfasalati með sítrónuolíu
hins vegar.
52 HAMBORG OG AMSTERDAM
Vikan var með í för þegar Flugleiðir
hófu formlega áætlunarflug til þess-
ara vinsælu borga.
56 KVIKMYNDIR
Stiklað á stóru í kvikmyndaheimin-
um.
60 SUMARLÍNAN
frá No Name er jafnan kynnt með
aðstoð íslenskra fegurðardísa.
Núna er það Linda Pétursdóttir sem
prýðir sölustandinn.
62 RISAROKKIÐ
Vikan heldur áfram að skýra frá
undirbúningi stórlónleikanna á
Kaplakrikavelli. Meðal annars er
sagt frá hljómsveit Eiríks Hauksson-
ar og bandarísku hljómsveitinni
Bullet Boys.
64 HATTAR
Myndsjá frá kvenfélagsfundi þar
sem hattur var inngönguskilyrði.
Þegar dregið var úr aðsendum bréf-
um hjóna 2. júní síðastliðinn komu
upp nöfn hjónanna Maríu S. Ás-
grimsdóttur og Kristins Finnsson-
ar, Hamragerði 29 á Akureyri. í
næsta tölublaði Vikunnar birtist
viðtal við hjónin og birtar verða
glefsur úr nokkrum þeirra fjöl-
mörgu bréfa sem bárust Vikunni í
Möltu-samkeppninni.
TIL MÖLTU
2 VIKAN 12. TBL.1991