Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 20
TEXTI OG MYNDIR: HJALTIJÓN SVEINSSON
Ævintýralegt ferðalag sænsk-íslenskrar stúlku í Þýskalandi
í ATVINNULEIT
MEÐ BAKPOKA
- DANSAR NÚ í DAS FANTOM DER OPER í HAMBORG
gg
Blaðamaður Vikunnar
varð þeirrar ánægju
aðnjótandi í febrúar
síðastliðnum að sjá
söngleikinn Das Fantom
der Oper í Hamborg eða
The Phantom of the
Opera eins og verkið
heitir á frummálinu,
ensku. Það er eftir hinn
kunna söngleikjahöfund
Andrew Lloyd Webber
og margir fullyrða að
þetta sé hans besta verk
fram að þessu. Hér er í
raun um klassíska tónlist
að ræða - en svo óm-
þýða að hörðustu rokk-
arar njóta hennar ekki
síður en fagurkerar sem
þekkja Mozart og Beet-
hoven út í æsar.
Sýningin er afar umfangs-
mikil og fram koma fjölmargir
söngvarar og dansarar í
henni. Nýlega birtist í Vikunni
stutt grein um uppfærsluna í
Hamborg en þaö var einmitt
vegna hennar sem blaða-
manni barst það til eyrna að í
sýningunni dansaði ung
sænsk-íslensk stúlka, Eva
Hallbeck, sem heföi áður starf-
aö í nokkurn tíma meö ís-
lenska dansflokknum í Þjóð-
leikhúsinu.
Það var síðan á fögrum vor-
degi að blaðamaður mælti sér
mót við þessa hálflöndu sína
eftir sýningu á sunnudegi.
Hann fór bakdyramegin til að
spyrja eftir henni og var hún
þá umsvifalaust kölluð upp. Að
vörmu spori kom hún bros-
andi, Ijóshærð og snaggaraleg
hnáta skoppandi innan úr
þessu völundarhúsi og bauð
hressilega góðan daginn. „Ég
átti von á þér, bíddu á meðan
ég set á mig húfuna,“ sagði
hún og smeygði svartri der-
húfu yfir niðurnjörvað hárið.
„Æ, ég verð að vera með þetta
á milli sýninga á sunnudögum
því það er svo mikið vesen að