Vikan


Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 60

Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 60
CHRISTOF WEHMEIER TÓK SAMAN Nýjar framhalds- myndir á árinu Isíðustu Viku var minnst á Terminator 2 - Judge- ment Day. Auk hennar er von á framhaldsmyndinni FX 2 sem er með leikurum eins og Bryan Brown (þeim ástralska sem er giftur hinni fögru leik- konu Rachel Ward sem lék í myndinni Against All Odds) og Brian Dennehy sem lék í myndum eins og Gorky Park, Presumed Innocent og fyrstu FX myndinni. Richard Franklin leikstýrir (Psycho 2, Link). I þessari framhalds- mynd leikur Bryan Brown sem fyrr brellumeistara. Hann að- stoðar lögregluna við að finna geðsjúkan morðingja. Spilling og svikráð leynast alls staðar, jafnvel á æðri stöðum þannig að persónan sem Bryan Brown túlkar er á báðum átt- um og biður þvi fyrrum lög- regluvin sinn, Brian Dennehy, sem nú er orðinn einkaspæj- ari, að aðstoða sig. Sú stórkostlega Julia Ro- berts mun leika í myndinni Mystic Pizza II en fyrri myndin skaut henni upp á toppinn. Eddie Murphy er staðráð- inn í að gera Beverly Hills Cop III. Eflaust eru margir orðnir spenntir og spyrja óþolinmóðir hvenær von sé á Alien III. Svarið er stutt og laggott. Seinna á árinu. Alla vega er Sigourney Weaver búin að vígbúast. En hvernig ætli söguþráðurinn sé? Hér verður ekki farið út í hann þó nægileg vitneskja sé til staðar. Bíðum frekar spennt eftir nýju geim- ævintýri. Á þessu ári eða næsta fara Patrick Swayze og Jennifer Grey í dansskóna aftur og stíga villtan dans í myndinni Dirty Dancing 2. Nú er búið að gera myndina The Return to the Blue Lag- oon. Flestir muna sennilega eftir fyrstu myndinni sem var með Brooke Shields. Lethal Weapon III verður að veruleika. Fyrst þarf leik- stjórinn, Richard Donner, þó aö Ijúka við mynd sem heitir Radio Flyer. í desember 1990 hófusttök- ur á myndinni Robocop 3 í Los Angeles. Hún verður ann- aðhvort frumsýnd þar vestra í lok þessa árs eða á næsta ári. Leikstjóri er Fred Dekker. Peter Weller mun þó ekki taka að sér aftur að vera riddari götunnar. Einhver annar tekur að sér að vernda Denverborg framtíðarinnar. □ Veggspjaldið sem auglýsir framhaldsmyndina FX2 með Bryan Brown og Brlan Dennehy. I'illiilií'llf Jlfl Væntanlegar kvikmyndir The buper er hjartahlý gamanmynd með hinum knáa, kjaftfora og hressa leikara Joe Pesci sem sýndi eftirminnilegan leik í myndum eins og Raging Bull, Good- fellas og Home Alone. Nú fer hann með aðalhlutverk en ekki aukahlutverk i myndinni The Super. Hann leikur nánös mikla sem leigir fólki hreysi. En honum á eftir að hefnast fyrir það því vansælir leigjend- ur taka til sinna ráða og neyða hann til að búa með sér í þessum ömurlegu húsakynn- um. Vincent Gardena og Rub- en Blades fara með aukahlut- verk. Leikstjóri er Rod Daniel sem leikstýrði myndinni K 9. Robert DeNiro - sá sami og hafði hér stutta viðdvöl í dýrri Leifsstöð landsmanna þann 19. maí 1991 -leikurnú í nýrri mynd sem heitir því kraftmikla nafni Mad Dog and Glory. Martin Scorsese framleiðir og John McNaughton leikstýrir. Rithöfundurinn, Ijóðskáldið, leikarinn, leikstjórinn og fram- leiðandinn Sam Shepherd, fyrrum eiginmaður Jessicu Lange, er búinn að framleiða kvikmynd sem heitir Bright Angel. Myndin fjallar um ung- an dreng (leikinn af Dermot Mulroney) sem fer að heiman og leitar að móður sinni sem leikin er af Valerie Perrine (Superman I og II og Lenny). Á vegi hans verður vandræða- stúlka sem Lili Taylor leikur. Hún biður strákinn meðal ann- ars um að frelsa bróður sinn úr fangelsi. Susan Sarandon, sem fór á kostum í myndinni White Palace, leikur nú í nýrri mynd sem heitir Thelma & Louise. Leikstjóri myndarinnar er Rid- ley Scott (Alien, Legend og Black Rain). Geena Davis leikur líka í myndinni. Vel á minnst, Susan Sarandon leik- ur gengilbeinu í þessari nýju mynd, rétt eins og í White Pal- ace. □ Svipmynd úr myndinni Bright Angel sem Sam Shepherd framleiðir. Úrvals- ► leikkonan geislandi, Susan Sarandon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.