Vikan


Vikan - 13.06.1991, Page 45

Vikan - 13.06.1991, Page 45
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR RITHÖFUNDUR OG LEIKSTJÓRI Frh. af bls. 10 miklu fremur eins og í eigin draumaveröld sem endurspeglast svo í skrifunum. Þessi veröld tek- ur næstum öll völd af manni þegar mest gengur á. Ég er lengi aö skrifa því það fer mikill tími í aö hugsa, sem er kannski erfiðasti undanfari sköp- unarinnar sem er aö drjúpa í gegnum mann, stundum allan daginn. Ég skrifa til dæmis mikið á ferðalögum, ekki síst erlendis. Ég get svo vaknað upp á nóttunum og fundist mig hafa dreymt jafnvel heilu kaflana. Eitt af því fáa sem ég treysti fullkomlega í lífinu er mitt eigið innsæi og draumarnir mínir," segir hún. Þórunn hefur reynst ákaflega forsþá í draumum sínum, þannig jafnvel að undrum sætir, segja kunnugir. „Vissir hlutir í draumum mínum,“ segir hún, „hafa svo sannarlega komið mér á óvart. Aftur á móti má segja að stundum hafi mér fundist nóg um hversu berir og skýrir þeir hafa reynst, eftir á séö. Mig dreymir mjög sérkennilega. Flestir draumarnir eiga sér stað á tveim túnum, annars vegar í Kollafirði, þar sem ég var mikið þegar ég var þarn, hins vegar á Kvískerjum í Öræfum. Þar var ég í fjögur ár sem unglingu." Þegar vináttuna ber á góma birtir yfir svipmiklu andliti Þórunnar og mikil hlýja streymir frá henni um leið og hún segir sig hafa verið einstaklega heppna í samskiptum við fólk, hafa borið gæfu til að eignast frábæra vini sem séu henni ákaflega mikils virði. Það skiptir óskaplega miklu máli í líf- inu að eiga traust og góð samskipti viö samferða- fólk sitt. Þannig forréttindi verða aldrei metin sem skyldi. Best þykir henni að eiga vináttu fólks sem í innsta eðli sínu er ólíkt henni en hefur þó til að bera heilindi og einlæga nærveru. „Vinir mínir eru mér afar kærir og þar sem ég get verið fljótfær, ef því er að skipta, býst ég viö að ég reyni stundum á þolrifin í þeirn." Eftir að hafa íhugað mannfólkið lengi frá ýms- um hliðum finnst Þórunni að fólk, sem hefur í eðli sínu og upþlagi verið stórt í sniðum hvað varðar hæfileika og tækifæri, eigi flest eitt sameiginlegt hið innra og það er auðmýkt. Þetta fólk virðist skynja og skilja að við getum ekki verið í hópi sig- urvegara öllum stundum. Það er ekki heppilegt hugarfar að reikna sífellt með því að vera elskað- ur og dáöur. Hún telur jafnframt mikilvægt að vera friðelskandi og vanda hugsanir sínar öðrum til handa. Þórunn telur að ekkert sé athugavert við að vera ekki alltaf á beinu brautinni, með alls kyns baktryggingar möguleika og tækifæra í fartesk- inu. Eðlilegra sé að sætta sig við að okkur getur mistekist og höfum stöku sinnum þörf fyrir að vera dálítið hallærisleg. Það hefur verið mjög athyglisvert að fá tæki- færi til að sitja þessa stund hjá Þórunni og kynn- ast áhugaveröum lífsskoðunum hennar og starfsvilja. Fátt eftir nema þakka fyrir sig og kveðja. Vandi gests við þann kurteislega ásetn- ing er sá aö hann verður með fyrirhöfn og ótta í brjósti að skáskjóta sér með lagni framhjá síams- ketti sem í miðjum klíðum hefur einhverra hluta vegna laumast inn í stofuna. Hann er drjúgur með sig í fangi Þórunnar eftir að hún hefur gripið kauða fagmannlega, þar sem hann hafði trítlaö laumulega óboðinn inn á okkur. Hún hjúfrar sig að síamskettinum ókunna og hann virðist alsæll með óeigingjörn atlotin. i framhaldi af vilja spyrils rétt í lokin, til að fá smáumfjöllun um ástina, segir Þórunn: „Traust á milli fólks er mikilvægara en allt annað í samskiptum þess hvert við annað. Ástin er afl sem er gífurlega áhrifaríkt i mannleg- um samskiptum. Hún virðist eiginlega fylgja eins konar eðlislögmálum. Það kemur fram í því hvernig fólk laðast hvert að öðru. Ástinni verður að fylgja traust, einlægni og virðing fyrir rétti þess sem maður elskar til að vera hann sjálfur,1' segir hún. Kvöldið er komið þegar haldiö er heim á leið og vart hægt aö greina lítinn blómagarð viö útidyrn- ar þegar gengið er hljóðum skerfum á vit nætur- innar. Þetta er garður sem listakonan er afar hreykin af og brosir reyndar eins og blóm sem opnar krónu sína móti geislum sólar þegar hún bendir sæl á sviþinn á litið Ijósleitt blóm sem á heimkynni sín í garðinum. Bjart og viðkvæmt undur náttúrunnar þarf greinilega aö hafa töluvert fyrir að viðhalda lífi sinu í norðanáttinni sem feykir Ijósgrænum blöðum þess létt og Ijúflega í átt til okkar beggja, um leið og við tökumst í hendur og bjóöum hvor annarri góða nótt, vissar um að í barmi næturinnar hvílir morgundagurinn með alla sína krafta og kveikir aftur birtu og von í annars ágætri veröld okkar allra. □ hefði verið upp á eyra hans siðan hann var þrett- án ára og var að fikta í gamla Ramblernum þeirra. Hann hafði óvart stigið á kúplinguna og gamli bill- inn runnið niður brekkuna og lent á skúrnum á baklóðinni. „Segðu þetta aldrei," sagði Herb. „Pabbi!" Herb sleppti, það vottaði fyrir brosi við munnvik- in. „Varstu búinn að gleyma þessu, ha? Hélst lík- lega að ég væri búinn að gleyma því líka. Óekkí, Johnny.“ Johnny starði á föður sinn, enn furðu lostinn. „Ásakaðu aldrei sjálfan þig.“ „En hún var að horfa á þessa fjárans ... “ „Frétt, já. Hún var í skýjunum ... og svo lá hún á gólfinu, munnurinn opnaðist og lokaðist eins og fiskur á þurru landi." Herb hallaði sér nær syni sínum. „Hún drýgði sína eigin synd. Hún þóttist vita huga Guðs. Ásakaðu því aldrei sjálfan þig fyr- ir hennar mistök.11 Það glitraði á tár í augum hans. „Guð veit að ég elskaði hana allt mitt líf og það var erfitt undir það síðasta. Kannski er þetta öllum fyrir bestu." „Má ég hitta hana?" „Já, hún býst við þér. Samþykktu bara allt sem hún segir. Ekki... láta hana deyja með það í huga að þetta hafi allt verið til einskis." „Nei.“ Hann hikaði. „Kemurðu með mér?" „Ekki núna. Kannski á eftir." Johnny kinkaði kolli og gekk inn ganginn. Mar- tröð hans í bílnum virtist afar nálæg. Minningar um móður hans helltust yfir hann, um hana brosandi og káta á ströndinni, hann og for- eldrar hans að spila um eldspýtur, daginn sem býfluga stakk hann og hann hljóp til hennar há- grátandi. Þegar hann kom inn sneri hjúkrunarkona, sem var að mæla púls hennar, sér við og spurði hvort hann væri sonur frú Smith. „Johnny?" Rödd móður hans barst úr hrúgald- inu í rúminu, þurr og hol, með dauðahryglu. Rödd- in - Guð hjálpi honum - kallaði fram gæsahúð um hann allan. Hann færði sig nær. Andlit hennar var afmyndað vinstra megin. Höndin, sem hann sá, var eins og kló. Hann kom enn nær og þvingaði sig til að taka um beinabera klóna. „Ég vil fá Johnny rninn," sagði hún í kvörtunar- tón. Hjúkrunarkonan leit á hann vorkunnaraugum og hann stóð sig að því að langa til að reka hnef- ann í þennan svip. „Viltu leyfa okkur að vera einurn?" spurði hann. „Ég ætti ekki að gera það meðan ..." „Hún er móðir mín og ég vil fá að vera einn með henni," sagði Johnny. „Ja..." „Komdu með ávaxtasafann, pabbi!" hrópaði móðir hans hásum rómi. „Ég gæti drukkið heilan lítra!" „Viltu koma þér héðan út?“ hrópaði hann á hjúkrunarkonuna. Hrikaleg sorg fyllti hann og hon- um fannst hann vera að sogast niður í hyldýpi myrkurs. Hjúkrunarkonan fór. „Mamma,11 sagði hann og kyssti klóna sem komin var í staðinn fyrir hönd hennar. „Ég vil fá Johnny." „Ég er hérna, mamma." „John-ny! John-ny! JOHN-NY!" „Mammasagði hann, hræddur um að hjúkr- unarkonan kæmi aftur. „Þú ..." Hún þagnaði og sneri sér að honum. „Komdu nær svo ég sjái þig,“ hvíslaði hún. Hann gerði eins og hún bað. „Þú komst,“ sagði hún. „Þakka þér fyrir.“ Tár fóru að flóa úr góða auganu. Augað þeim megin sem hún hafði lamast við áfallið starði skeytingar- laust upp. „Auðvitað kom ég.“ „Ég sá þig,“ hvíslaði hún. „En sá máttur sem Guð hefur gefið þér. Sagði ég ekki?“ „Jú, þú sagðir það.“ „Hann hefur ætlað þér verk,“ sagði hún. „Ekki hlaupa frá honum, Johnny. Ekki fela þig í helli eins og Elías eða láta hann senda stóran fisk til að gleypa þig. Ekki gera það, John.“ „Nei. Ég geri það ekki.“ Hann hélt í klóna. Hann verkjaði í höfuðið. „Ekki leirkerasmiðurinn heldur leirinn, John. Mundu það.“ „Já.“ “Mundu þaö!“ sagði hún óbilgjörn og hann hugsaði: Hún erad fara inn í dellulandið aftur. En það gerði hún ekki; fór að minnsta kosti ekkert lengra inn í það en verið hafði síðan hann vaknaði úr dáinu. „Hlýddu lágværu röddinni þegar hún kemur," sagði hún. „Já, mamma. Ég geri það." Höfuð hennar snerist örlítið á koddanum og - var hún brosandi? „Þú heldur líklega að ég sé klikkuð." Hún sneri höfðinu örlítið meira svo hún gæti horft beint á hann. „En það skiptir engu máli. Þú munt þekkja röddina þegar hún kemur. Hún mun segja þér hvað gera skal. Hún sagði Jeremíasi og Daníel og Amosi og Abraham til. Hún mun vitja þín. Og þegar að því kemur, Johnny ... gerðu þá skyldu þína." „Allt í lagi, mamma." „En sá máttur,11 muldraði hún. Rödd hennar var að verða loðin og óskýr. „En sá máttur sem Guð hefur gefið þér... ég vissi það ... ég vissi það alltaf..." Hún þagnaði. Góða augað lokaðist. Hitt starði tómlega fram á við. Johnny sat hjá henni í fimm mínútur í viðbót og stóð svo upp. Hann hélt um hurðarhúninn þegar hann heyrði hryglutóninn aftur. „Gerðu skyldu þína, John.“ „Já, mamma." Þetta var í síðasta sinn sem hann talaði við hana. Hún dó klukkan fimm mínútur yfir átta að morgni 20. ágúst. Einhvers staðar fyrir norðan þau voru Walt og Sara Hazlett að ræða Johnny eða allt að því rífast um hann og einhvers staðar fyrir sunnan þau var Greg Stillson að skipta við al- geran fávita. FRAMHALD í NÆSTU VIKU 12. TBL. 1991 VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.