Vikan


Vikan - 13.06.1991, Síða 5

Vikan - 13.06.1991, Síða 5
SÖNGURINN ERVORTMÁL Söngurinn hefur ætíö ver- iö okkur íslendingum í blóð borinn. Hvar sem komiö hafa saman tveir eöa fleiri hafa menn tekið lagið sér og öörum til skemmtunar. Óteljandi kórar eru starfræktir víða um land og varla er til svo fámennt sveitarfélag aö þar séu ekki að minnsta kosti tveir kórar, það er kirkjukórinn svo og karlakór, kvennakór eða þá kór aldraðra. Þessar söng- sveitir láta sér sjaldnast nægja að þenja raddböndin eingöngu heima í héraði. Oft er lagst í ferðalög með þrautæfða dagskrá upp á svona tvær til þrjár klukkustundir. Er þá stefnan gjarnan sett á kóramót eða sönghátíðir ýmsar innan- lands. Þeir sem eru forframað- ir leggjast í víking og halda til útlanda þar sem þeir flytja til- heyrendum íslensk ættjarðar- lög og áttundarsöngva. Hafa slíkar ferðir löngum talist til hinna mestu afreka og verið flokkaðar undir landkynningu af betra taginu. Heimahérað okkar Ásgeirs fyrir norðan er engin undan- tekning hvað þetta varðar. Við vorum bæði í kirkjukórnum sem starfaði af miklum krafti. Að auki var Ásgeir í Sam- bandskórnum svokallaða, er samsettur var af bændum sem eingöngu versluðu við S(S, svo og kvartett sem kenndur var við Hánefsstaði. Sá fyrr- nefndi dó drottni sínum fyrir nokkru af skiljanlegum ástæð- um. Hánefsstaðakvartettinn var hins vegar afar vinsæll á ættarmótum. Kom Ásgeir yfir- leitt þéttkenndur heim þegar hann hafði verið aö skemmta á svoleiðis samkomum. Eina skiptið sem mig rekur minni til að hann hafi verið í sómasam- legu standi var þegar kvartett- inn skemmti á fjölmennri úti- hátíð í Birkilundi. Hún var haldin af góðtemplarafélaginu Einherja og þar var ekkert sterkara en appelsínusafi á boðstólum. Ég lét mér kirkjukórinn nægja enda var í nógu að snúast á þeim vettvangi. Stjórnandinn, Sigurbergur á Súluskeri, rak kórinn á kristi- legum kærleiksgrunni enda hefði þar ýmislegt mátt betur fara. Eitt var það að hann gat aldrei neitað neinum um þátt- töku. Þess vegna voru þarna innan um raddir sem betur hefðu átt heima í smala- mennsku uppi á öræfum. Af mörgum vondum var þó Fjóla á Fjalli allra verst. Það var ekki nóg með að hún væri alltaf vel fyrir ofan þá tónhæð sem aðrir sungu heldur var hún að minnsta kosti 150 kíló að þyngd. Þegar röddin bergmál- aði í þessum rúmmikla búk yfirgnæfði hún alla aðra. Ekki bætti það úr skák að Fjóla beitti henni alltaf eins og hún væri með léttasótt. Og nú var búið að bjóða okkur á kóramót í Stavangri í Noregi. Það þýddi ekkert að biðja guö að hjálpa sér - nú var um að gera að æfa eins og raddböndin og heimilisfólkið þoldi og mæta svo á staðinn með englaraddir og meitlað prógramm í farteskinu. Fjóla söng millirödd eins og ég. Hún stóð reyndar fyrir aft- an okkur Herborgu oddvita og þandi raddböndin inn í hægra eyrað á mér og það vinstra á oddvitanum. Það heyrði til undantekninga ef henni tókst ekki að setja okkur út af í hverju einasta lagi. Karlálftin hann Sigurbergur fékk alltaf harðlífisdrætti í andlitið en aldrei fékk hann sig til þess að setja ofan í við Fjólu. Það var borin von að hann hefði manndóm í sér til að segja henni að sitja heima. Þegar við vorum búin aö æfa baki brotnu í tæpa sjö mánuði vorum við beðin um að skemmta á 17. júní- skemmtun i lystigarðinum í kaupstaðnum. Þarna var tækifærið til þess að prufukeyra Stavanger- dagskrána á áheyrendum. Það var líka tímabært að sjá hverjar viðtökur við hlytum því sjálft mótið átti að fara fram eftir viku. Við fórum í okkar besta púss, mættum timanlega í lystigarðinn og röðuðum okkur upp á palla sem þar hafði verið komið fyrir handa kórnum. Sigurbergur hóf tónsprotann á loft og við byrjuðum að syngja. Við vorum langt komin með fyrsta erindið í Ó, blessuð sértu sumarsól, þegar Fjóla tók hviðu svo trén í garðinum nötruðu og blómskrúðið lagð- ist flatt. Það þarf ekki að orð- lengja að hún setti ekki bara okkur Herborgu heldur allan kórinn út af laginu, svo allt fór í handaskolum. Hinir fjölmörgu áheyrendur grétu af hlátri, Sig- urbergur pataði með írafári út i loftið og viö rembdumst við að koma okkur á réttan kjöl aftur. Er skemmst frá því að segja að svipaðar uppákomur urðu í hverju einasta lagi. Fjóla hóf barminn og þandi sig eins og hún væri að tala til himinguð- anna. Við vorum meira utan laglínunnar heldur en á henni og áheyrendur voru orðnir grátbólgnir af hlátri. Tón- leikarnir mistókust gjörsam- Við vorum meira utan laglinunnar orðnir grátbólgnir af hlátri. lega og lukum við þeim með hinni mestu skömm. Við kórfélagarnir vorum al- veg niðurbrotnir, allir nema Fjóla. Hún lék á als oddi. Her- borg oddviti bruddi grjót og ég heyrði að hún tuldraði eitthvað um að „... stoppa helvítis kellinguna af...“ og ....dropa í apótekinu ..." og fleira sem ég ekki nam. Mér kom það þess vegna ákaflega á óvart þegar hún vék sér að sjálfum skemmdarvargnum, Fjólu, og spurði hvort ekki mætti bjóöa henni í kaffi á fimmtudaginn, daginn fyrir brottför. Fjóla varð enn bros- mildari og þáði boðið með þökkum. Segir nú ekki frekar af kór- félögunum fyrr en þeir hittust við Reykjavíkurrútuna á föstu- dagsmorguninn. Sigurbergur kom á síðustu stundu, móður og másandi. Hann bankaöi stafnum í gólfiö og tilkynnti okkur hárri röddu að við yrðum einu færra en áætlað hefði verið. „Frú Fjóla hringdi í mig í morgun til þess að segja mér aö hún kæmist því miður ekki með,“ sagði hann. „Hún veikt- ist í nótt og fékk víst þennan voðalega ... hm... niður- gang.“ Ég sá að Herborg sneri sér undan og brosti. □ en á henni og áheyrendur voru TT O 70 <D m 70 O cz 70 í> cz co :> o 8' 70 co § i> 70 12. TBL. 1991 VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.