Vikan


Vikan - 13.06.1991, Page 12

Vikan - 13.06.1991, Page 12
TEXTI: GUÐNÝ Þ. MAGNÚSDÓTTIR Pw ert orðin svo gömul og Ijót að ég ætla að fá mér nýja konu Viðtal við íslenska konu sem eiginmaðurinn yfir- gaf vegna yngri konu eftir þrjátíu ára hjónaband Hún er rúmlega fimm- tug, lágvaxin og mjög hugguleg kona og lít- ur út fyrir aö vera mun yngri en hún er. Heimili hennar er fal- legt og auöséð aö þar býr hag- leikskona því veggina prýöa málverk eftir hana sjálfa. „Þetta hef ég eignast á nokkrum árurn," segir hún og bendir á innanstokksmunina. „Ég seldi þaö litla sem ég tók meö mér eftir skilnaðinn. Ég gat ekki hugsað mér að hafa ( kringum mig hluti sem minntu mig á allt þaö sem hefur gerst.“ Það er kannski ekki furöa aö hún taki svo til orða því það hefur margt gerst í lífi þessar- ar konu. Átján ára gömul hitti hún manninn sem hún átti eftir aö eyða þrjátíu árum meö i hjónabandi og eignast meö fimm börn. Eitt barniö missti hún ársgamalt. Samkvæmt áliti eiginmannsins var hún svo illa af guöi gjörö að hann varð að hugsa fyrir hana í einu og öllu, nema náttúrlega hvað viðvék heimilisverkum og barnauppeldi. Þaö gat hún gert. Hún vann og þrælaði og gerði allt sem henni var sagt og trúði því sjálf aö hún væri jafn- ómöguleg og maður hennar sagði. Enda eins gott því ef hún var ekki hlýðin fékk hún bara einn á hann eða spark þar sem hann hitti. Þegar börnin eltust tileinkuðu þau sér viðhorf föðurins og tóku lítið til- lit til móðurinnar. Þegar svo faðir þeirra skildi við móður þeirra og hóf búskap meö ann- arri konu, jafngamalli elsta barni sínu, fannst þeim það ekkert tiltökumál og sneru baki við móðurinni. Undanskilið var þó yngsta barnið, sonur, þátfu ára gamall. Hann fór með móður sinni en þau eldri urðu eftir hjá föður sínum. „Stuttu eftir aö við giftum okkur hélt hann framhjá mér en viðurkenndi það þó aldrei beint og ég taldi mig ekki hafa ástæðu til að ætla að hann héldi því áfram. Jafnvel við skilnaðinn laug hann að öllum að engin önnur kona væri í lífi sínu þrátt fyrir að hann hefði haldið viö hana um alllangt skeið. Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar ég komst að sambandi þeirra. Mér fannst heimurinn hrynja og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera. Ég trúði því aldrei að ég gæti spjarað mig án hans. Allt í einu var ég orðin ein, at- vinnulaus, peningalaus og meö barn á framfæri. Á sama tíma uppgötvaðist að ég var komin með krabbamein. Hvaðan ég fékk styrk til að komast í gegnum þennan tíma veit ég ekki. Það var eins og innra með mér vaknaði eitt- hvað af dvala og ég ákvað að ég skyldi standa mig hvernig sem ég færi að því.“ Þegar hún svo bætir því við að í raun og veru sé maöurinn sinn fyrr- verandi góður maður og aö sér þyki enn vænt um hann og sér undrunarsvipinn á tíðinda- manni Vikunnar þá útskýrir hún að framferði hans stafi af skorti á þroska. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau úti á landi en fluttu svo til Reykjavíkur þar sem maður- inn fékk gott starf. Hann er ágætlega menntaður og þau voru vel stæð. „Hann er mjög ákveðinn og frekur og allt varð að vera eftir hans höfði. Börnin urðu að lúta mjög ströngum aga og það sama gilti um mig. Hann vildi ekki sjá neitt „vinkonustand" og fljótlega sá hann til þess að ég umgekkst ekki aðra en þá sem hann valdi. Starfs síns vegna þurfti hann að ferðast mikið út á land og eitt sinn þurfti ég að ná í hann vegna veikinda eins barnsins. Ég hringdi því á hótelið þar sem hann bjó og spurði um hann. Svarið, sem ég fékk, var á þá leið að ÞAU væru farin út.“ - Hvernig varð þér við? „Þetta varð til þess að ég horfðist í augu við það sem var að gerast. Áður hafði vita- skuld heilmargt gefiö mér til- efni til að gruna að hann héldi fram hjá mér en ég var einfald- lega ekki tilbúin aö horfast í augu við þaö og forðaðist með því sársaukann sem því fylgdi, án þess að vita af því.“ - Hver urðu viðbrögð mannsins þíns þegar hann vissi að þú hafðir komist aö framhjáhaldi hans? „Hann neitaði öllu og lét sem mér kæmi það ekkert við hvort kona hefði verið hjá hon- um á hótelinu eða ekki. Út úr þessu varð nokkur rimma sem endaði með því að hann sparkaði í mig. Honum var Ijóst að með því móti gat hann þaggaö niður í mér því ég vildi allt til vinna að komast hjá því að hann beitti mig líkamlegu ofbeldi." - Var þér Ijóst á þessum tíma hver hin konan í lífi hans var? „Já, ég hafði sterkan grun um hver hún var. Síðar kom í Ijós að ég hafði rétt fyrir mér.“ - Skilduð þið skömmu síð- ar? „Já, það leiö ekki langur tími þar til hann sagði mér að hann vildi fá skilnað. Þegar ég spurði um ástæðuna fékk ég það svar að ég væri orðin svo gömul og Ijót að hann gæti ekki sýnt sig með mér á mannamótum. Ekki vildi hann þó enn viðurkenna að önnur kona væri í spilinu. Þegar börnin okkar spurðu um á- stæðu skilnaðarins sagði hann þeim ósatt og þrátt fyrir að bæði þau og flestir aðrir vissu um samband hans og viðhaldsins kusu þau að trúa honum." - Hvernig leið þér meöan á þessu stóð? „Ég get varla lýst því. Fyrst og fremst var ég hrædd og niðurlægð. Ég var þess fullviss aö ég gæti aldrei spjarað mig ein enda búin að heyra stöð- ugt í þrjá áratugi að ég væri vitlaus og ómöguleg. Eftir á er mér Ijóst að ég var ambátt mannsins míns og barnanna og tilhugsunin um að standa á eigin fótum var mér gjörsam- lega ofviða. En þá vaknaði einhver neisti af vilja innra með mér. Ég ákvað að ég skyldi sýna þeim að ég gæti staðið mig ein og óstudd. Ég tók þá ákvörðun að flytja út á land, pakkaði saman og fór.“ - Nú áttuð þið miklar eignir. Hvernig fórst þú fjárhagslega út úr skilnaðinum? „Ég fékk nógu mikið til að geta fest kaup á einstaklings- íbúð hérna fyrir norðan. Á þessum tíma var ég svo niður- dregin að ég gat ekki barist við hann og afsalaði mér öllu ööru, meðal annars lífeyri. Honum fannst ástæðulaust að ég fengi meira og ég hefði þurft að fara í mál við hann en hafði til þess enga krafta eins og á stóð. Hann nýtti sér þess- ar aðstæður út í ystu æsar og því fór sem fór. Stuttu eftir að ég flutti kom hann á eftir mér og sagði að sig langaði að hitta drenginn. Mér þótti það sjálfsagt, hugsaði sem svo að við þyrftum ekki aö vera neinir óvinir þrátt fyrir allt og þegar hann fór fram á að fá að búa hjá okkur þá leyfði ég honum það. Ég þóttist vera að gera rétt gagnvart barninu, hann væri þó ailtaf faðir þess og ekkert skipti jafnmiklu máli og gott samband á milli föður og sonar. Ég átti seinna eftir að sjá hvað ég hafði rangt fyrir mér.“ - Var það þá sem hann vildi að þið tækjuð saman aftur? „Já, hann sagðist sjá eftir öllu saman og vildi að við reyndum aftur. Eins og fífl 12 VIKAN 12. TBL 1991

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.