Vikan


Vikan - 13.06.1991, Qupperneq 18

Vikan - 13.06.1991, Qupperneq 18
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN FRÁSAGNIR FARARSTJÓRA OFBOÐSLEGA GAMAN AÐ ÞESSU STARFI Aðalsteinn Bergdal leikari er fararstjóri hjá Samvinnuferðum- Landsýn. í spjallinu við Vikuna rifjar hann upp nokkuð af því sem dreif á daga hans sem fararstjóra eldri borgara. „Þessar ferðir með eldri borgarana eru ynd- islegustu ferðir sem maður fer - þó stundum sé maður að berjast við að koma þeim í háttinn milli þrjú og fjögur á næturnar,11 segir Aðal- steinn. „Maður sér mörg einstaklega falleg sambönd meðal þeirra og gegnum þessar ferðir hef ég eignast mjög marga vini sem ég heimsæki. Einhvern tíma var ég með hóp sem að vísu var alveg einstakur hrakfallahópur og eigin- lega allt gerðist hjá sem gat gerst. Einn fót- brotnaði en sagðist bara hafa gaman af því, hann væri atvinnusjúklingur og búinn að fara í þrjátfu og tvo skurði. Hann var sjór sagna, þessi maður, alveg yndislegur karl og þótti ekkert að því að liggja á sjúkrahúsi í fríinu. Hjúkrunarkonan hans sagði síðar við mig að þetta væri yndislegasti sjúklingur sem hún hefði haft. Hins vegar þyrfti að kenna honum einn hlut og það væri að kvarta. Svo voru þarna hjón og maðurinn kemur til mín einn daginn og greinilegt að mikið leynd- armál er á ferðinni. Ég spurði hann hvað væri að og kom þá í Ijós að hann hafði brotið falska efri góminn. „Þá verðum við bara að reyna að bjarga því,“ segi ég við hann og fæ mann til að útvega mér efni frá tannlækni til að líma góminn. Gómurinn hafði brotnað langsum og ég mæti með græjurnar í íbúðina, sem í bjuggu tvenn hjón. Ég sest við borð í stofunni og svo stilla þau sér öll fjögur upp kringum borðið. Ég hafði nú ekki glingrað viö að setja saman góm áður og efnin þurfti að hræra sam- an eftir kúnstarinnar reglum og þarna stóðu þau fjögur yfir mér meðan á athöfninni stóð. Ég vandaði mig óskaplega en þau efuðust mjög um það allan tímann að ég færi nú rétt að. Ég límdi og pússaði, spartlaði og bar í með tvenn hjón á öxlunum og á endanum fór auðvitað gómurinn upp í manninn. Þá sagði hann: „Svei mér ef gómurinn er ekki bara betri núna en hann var. Það hefur eitthvert fyllingarefni kom- ið þarna sem ég hefði eiginlega þurft aö fara að fá í hann. Nú get ég alveg gleymt því.“ Svo vorum við með einn ansi góðan sem dreif sig alltaf í trimmgalla og ullarsokka um leið og suður var komið, vel sjötugur maðurinn. Hann sat í trimmgallanum og ullarsokkunum, keðjureykti Camel og drakk kaffi og koníak með. Eitt skipti erum við að koma með hóp og þá kemur hann á bull-sullandi ferð eftir gangin- um. Hann tiplar þarna í átt til okkar og er meö fiskibolludós frá Ora í höndunum. Hann réttir kvenfararstjóra fiskibolludósina og segir: „Hérna, þú mátt eiga þetta. Ég finn ekki opnar- ann.“ Islensk fiskibolludós var sjaldséður hlut- ur á Mallorka þannig að hún tekur ákvörðun um það strax að hafa fiskibollurnar í matinn Aöalsteinn Bergdal með yngsta farþegann sem hann þjónaði sumarið 1988. Á myndinni fyrir neðan sést hann í fullum skrúða að kæta íslenska sólarlandafara af yngri kynslóðinni. U„Einn fótbrotnaði en sagðist bara hafa gaman afþví, hann væri um kvöldið. Svo stendur dósin á afgreiðslu- borðinu og við fararstjórarnir fórum að merkja töskur. Það líður og bíður og karlinn er alltaf eitthvað að vafra þarna rétt hjá dósinni en snýr alltaf við. Allt í einu kemur hann svo á þessari rosalegu siglingu og þá er konan rétt búin að handsama dósina og er í þann veginn að fara. Hann kemur og rífur dósina úr hendi hennar og segir: „Heyrðu! Ég er hættur við að gefa þér hana, ég fann opnarann!““ - Er þetta skemmtilegt starf? „Það er ofboðslega gaman að þessu starfi þegar vel gengur - og hvernig sem gengur. Það er gaman að hafa eitthvað að takast á við. En þetta er mikil vinna og mikil viðvera. Sem fararstjóri þarf maður að vera læknir, sál- fræðingur og eiginlega allt. Það fyrirfinnast vart þau mál sem ekki þarf að taka á í þessu starfi. Eitt árið var áberandi mikil drykkja á mann- skapnum. Einu sinni sem oftar kem ég á hótel að morgni dags til að halda kynningarfund og er þá tilkynnt af hótelstjóranum að einhver hafi lamið Hollending kvöldið áður. Hótelstjórinn vissi ekki hver hlut átti að máli en ég geng út að sundlaug og spyrst fyrir um málið. Þá bar ,svo við að allir íslendingarnir höfðu sofnað snemma og enginn vissi neitt. Eftir fundinn kemur til mín barþjónn og segir að hjá sér sé maður sem brjóti alltaf glösin eftir að hafa tæmt þau. Ég sagðist skyldu rukka manninn fyrir glösunum og þegar ég kem þarna niður sé ég einn íslending með nýjar skrámur. Ég geng því á hann og segi honum að hann verði að gera sér grein fyrir því hvaö það kosti ef hann geri atvinnusjúklingur og búinn að fara í þrjátíu og tvo skurði. Hann var sjór sagna, þessi maður, alveg yndislegur karl og þótti ekkert að því að liggja á sjúkrahúsi í fríinu.“ 18 VIKAN 12. TBL. 1991
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.