Vikan


Vikan - 13.06.1991, Qupperneq 21

Vikan - 13.06.1991, Qupperneq 21
taka grisjuna af og setja hana á aftur. Við erum nefnilega með síðar hárkollur á sviðinu." Þaö var haldið á lítinn og vinalegan grískan veitinga- stað í nágrenninu en Eva hafði ekki nema rúma klukkustund til stefnu. „Ég er nú bara að hugsa um að fá mér salat,“ sagði hún. „Það er ekki gott að borða mikið fyrir sýningu. Framandi en samt kunnug- leg tónlist hljómaði inni á veit- ingastaðnum og lét vel í eyr- um. „Við förum oft hingað vinnufélagarnir, þetta er svo ansi viðkunnanlegt. Við höfum heldur ekki í mörg hús að venda því leikhúsið er inni í miðju íbúðarhverfi og því eru ekki margir matsölustaðir hér í nágrenninu. (búarnir mót- mæltu staðsetningu þess harðlega á sínum tíma en mér finnst húsið falla mjög vel inn í umhverfið þótt stórt sé. M„Ég stakk niður í bakpok- ann dansbún- ingi og því aiira nauðsynleg- asta svo óþarfa hlutir væru ekki að flækj- ast fyrir mér og fór af stað.“ MEÐ BAKPOKA ÚT í HEIM Á meðan beðið var eftir gríska grænmetissalatinu var Eva spurö að því hvernig hefði staðið á því að hún fékk þessa skemmtilegu stöðu í Neue Flora-leikhúsinu í Hamborg. „Ég fór á sínum tíma ein míns liðs með bakpoka frá Svíþjóð til þess aö freista gæf- unnar i listgrein minni. Ég keypti mér svokallaðan „inter- rail“-járnbrautafarseðil og hélt af stað. Ég var með mjög lítinn farangur og bjó eingöngu á farfuglaheimilum meðan á þessu stóð. Ferðin tók sex vik- ur og ég ferðaðist víða um Þýskaland og dansaði fyrir ráðamenn hinna ýmsu ballett- flokka og leikhúsa. Það var ekki fyrr en ég frétti af því að aðstandendur Das Fantom der Oper í Hamborg væru að leita að ballettdönsurum í sýn- inguna að það hljóp á snærið. Þeir fóru líka í leitarleiðangur til London, auk þess sem þeir völdu úr fólki í Hamborg. Mér gekk ágætlega en ég fékk ekk- ert að vita strax. Þegar ég hafði verið heima í Svíþjóð í fimm vikur hringdi loks síminn hjá mér og þeir buðu mér samning. Þessi sex vikna ferð var mjög skemmtileg. Ég stakk niður í bakpokann dansbún- ingi og því allra nauðsynleg- asta svo óþarfa hlutir væru ekki að flækjast fyrir mér og fór af stað. Ég kynntist mörgu skemmtilegu fólki og hefði ekki viljað fara á mis við þennan tíma.“ - Varstu ekkert smeyk að vera svona ein á ferð úti [ hin- um stóra heimi? „Nei, nei, - jú annars, fyrsta daginn en svo vandist ég þessu. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og treysta sjálf- um sér. Maður verður að læra að bjarga sér sjálfur og standa á eigin fótum. Það þýðir ekkert að sitja heima og bíða eftir því að eitthvað gerist. Þá gerist nefnilega ekki neitt! Ég var í sjálfu sér ekki að fara í neinu tilgangsleysi þeg- ar ég lagði af stað. Ég hafði ákveðið hvar ég skyldi bera niður og bjó mér til áætlun. Meðal annars dansaði ég hjá leikhúsunum í Hannover, Bremen, Heidelberg, Essen, Dusseldorf og Bonn áður en ég kom til Munchen." SÝNT FYRIR FULLU HÚSI - Hvenær byrjaðir þú að dansa hér í Hamborg? „Við byrjuðum að æfa ball- ettinn 1. maí á síðasta ári. Þá var sjálft leikhúsið, Neue Flora, ekki tilbúið en það var í raun byggt sérstaklega yfir þessa uppfærslu því ekkert hús í Hamborg gat tekið hana, hún er svo viðamikil. Sviðið er svo stórt aö maður er eins og lítil mús á því. Frumsýningin var 29. júní. Fyrstu vikurnar æfðum við á Reeberbahn. Þetta sumar var yndislegur tími. Verkefnið var mjög spennandi, ég kynntist mörgu skemmtilegu fólki sem vann við sýninguna og veðrið var al- veg frábært. Allt var okkur svo framandi og allir voru svo áhugasamir. Stelpurnar, sem byrjuðu að dansa með mér í upphafi, eru ennþá í sýning- unni. Ein þeirra kemur frá Bandaríkjunum, fjórar frá Englandi og aðeins ein er Frh. á næstu opnu LINDA PETURSDOTTIR íslensk feguré NO NAME —— COSMETICS —1 Rekís hf. — Sími 26525 12. TBL. 1991 VIKAN 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.