Vikan


Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 37

Vikan - 13.06.1991, Blaðsíða 37
gluggann, fæturnir á pullunni fyrir framan, klædd- ur í náttföt og ódýran spítalaslopp. „Ég fór í smókinginn, eins og þú sérö," sagði hann. „Pú ert fínn." Hún kyssti hann á kinnina og hundrað minningar stokkuðust upp í huga hans eins og tvöfaldur spilastokkur. Hún sat i hinum stólnum, krosslagði fæturna og togaði í kjólfald- inn. Þau horfðu hvort á annað án þess að segja neitt. Hann sá að hún var afar óstyrk. Kæmi ein- hver við öxl hennar myndi hún líklega stökkva upp úr sætinu. „Ég vissi ekki hvort ég ætti að koma," sagði hún, „en mig langaði verulega til þess.“ „Ég er feginn að þú gerðir það." Eins og ókunnugt fólk í rútu, hugsaði hann dapur. Það hlýtur að vera meira en þetta, er það ekki? „Hvernig líður?“ spurði hún. Hann brosti. „Ég hef verið í stríðinu. Viltu sjá örin eftir bardagana?" Hann sýndi henni S-laga örin á hjánum. Þau voru að byrja að gróa. Þau voru rauð enrjþá og örin eftir saumana greinileg. „Drottinn minn, hvað eru þeir að gera þér?“ „Þeir eru að reyna að tjasla mér saman aftur,“ sagði Johnny. Svo ég býst við ... “ Og þá hætti hann vegna þess að hún var grátandi. „Ekki segja þetta á þennan hátt, Johnny,“ sagði hún. „Gerðu það.“ „Fyrirgefðu. Ég var bara að reyna að grínast með þetta." Var það? Eða hafði þetta verið hans leið til að segja: Þakka þér fyrir komuna, það er verið að skera mig niður í búta hérna? „Geturðu grínast með þetta?" Hún hafði tekið pappírsþurrku úr töskunni sinni og var að þurrka sér um augun með henni. „Ekki oft. Líklega við það að sjá þig aftur... varnirnar fara upp, Sara.“ „Ætla þeir að hleypa þér út héðan?" „Það kemur að því.“ „í surnar?" „Nei... það held ég ekki.“ „Mér finnst svo leitt að þetta skyldi gerast,“ sagði hún svo lágt að hann heyrði varla til hennar. „Ég reyni að reikna út hvers vegna ... eða hvern- ig hefði verið hægt að breyta þessu ... og það rænir mig bara svefni. Hefði ég ekki snætt þessa skemmdu pylsu ... ef þú hefðir verið um kyrrt í stað þess að fara ... “ Hún hristi höfuðið og leit á hann, augu hennar rauð. Johnny brosti. „Tvöfalt núll. Manstu það? Ég malaði hjólið, Sara.“ „Já. Þú vannst rúma fimm hundruð dollara." Hann leit á hana, enn brosandi en nú voru sár- indi í brosinu. „Viltu vita svolítið skrítið? Læknarn- ir álíta að hugsanleg ástæða þess að ég lifði sé sú að ég hafi slasast á höfði þegar ég var barn. Þó man ég ekki eftir því og foreldrar mínir ekki heldur. En það er eins og í hvert sinn sem ég hugsa um það sjái ég lukkuhjólið fyrir mér... og finni lykt af brennandi gúmrníi." „Þú hefur kannski lent í bilslysi..." byrjaði hún. „Nei, það held ég ekki. En það er eins og hjólið hafi verið aðvörun til mín ... og ég hlýddi henni ekki." Hann yppti öxlum. „Eða kannski notaði ég bara upp fjögurra ára heppni á einu kvöldi. En sjáðu þetta, Sara.“ Var- lega tók hann annan fótinn af pullunni, beygði hann í níutíu gráða vinkil og teygði síðan úr hon- um á pullunni aftur. „Kannski er hægt að tjasla mér saman. Ég gat þetta ekki þegarég vaknaði og ég gat heldur ekki haft fæturna eins beina og þeir eru núna." „Og þú getur hugsað, Johnny," sagði hún. „Þú getur taiað. Við héldum öll... þú veist." „Já, gulrófan hann Johnny.“ Þögn féll aftur á, þung og vandræðaleg. Johnny rauf hana með því Atriði úr kvikmyndinni Misery, sem Bíóborgin hefur sýnt við góða aðsókn undanfarið. Myndin er gerð eftir magnaðri spennusögu Stephens King, höfundar framhaldssögu Vikunnar, og færði Kathy Bates óskarinn fyrir besta leik í aðalhlutverki. Hún sést hér í einu atriði myndarinnar ásamt James Caan. að segja með þvinguðum hressileika: „Hvað er að frétta af þér?“ „Ja... ég er gift. Þú veist það líklega." „Pabbi sagði mér það.“ „Hann er svo góður maður," sagði Sara. Og svo, í óðagoti: „Ég gat ekki beðið, Johnny. Mér finnst það leitt líka. Læknarnir sögðu að þú myndir aldrei vakna. Og jafnvel þó ég hefði vitað það ..." Hún leit upþ á hann og svipurinn bar vott um varnarstöðu. „Þó ég hefði vitað þetta held ég ekki að ég hefði getað beðið. Fjögur og hálft ár er langur tími.“ „Já, það er það," sagði hann. „Fjári langurtími. Langar þig að heyra svolítið sjúklegt? Ég fékk þá til að færa mér fréttatímarit síðustu fjögurra ára, bara til að sjá hverjir hefðu dáið. Truman. Janis Joplin. Jimi Hendrix - Jesús, ég hugsaði til hans taka „Purple Haze" og ætlaði varla að trúa því. Dan Blocker. Og þú og ég. Við hurfum bara á braut.“ „Ég finn til svo mikillar sektarkenndar yfir því," sagði hún næstum hvíslandi. „En ég elska mann- inn minn. Heilmikið." „Það er það sem máli skiptir." „Hann heitir Walt Hazlett og hann er... “ „Ég vil frekar heyra um barnið þitt,“ sagði Johnny. „Hann er yndislegur," sagði hún brosandi. „Hann er sjö mánaða núna. Hann heitir Dennis en við köllum hann Denny. Hann heitir eftir föðurafa sínum." „Komdu með hann einhvern tíma. Mig langartil að sjá hann." „Það skal ég gera,“ sagði Sara og þau brostu falskt hvort til annars, vissu að ekkert slíkt ætti eft- ir að gerast. „Þarfnastu einhvers, Johnny?" Bara þín, elskan. Og síðustu fjögurra áranna til baka. „Nei,“ sagði hann. „Ertu enn að kenna?“ „Enn að kenna,“ samsinnti hún. „Enn að taka þetta kókaín í nös?“ „Ó, þú hefur ekkert breyst. Alltaf sami stríðnis- púkinn." „Sami stríðnispúkinn," samsinnti hann og þögnin féll á milli þeirra aftur með nánast heyran- legum skelii. „Má ég koma að heimsækja þig aftur?“ „Sannarlega," sagði hann. „Það væri fínt, Sara.“ Hann hikaði, vildi ekki að þetta endaði á svo ófullnægjandi hátt, vildi ekki særa hana né sjálfan sig ef komist yrði hjá því. Langaði til að segja eitthvað heiðarlegt. „Sara,“ sagði hann, „þú breyttir rétt." „Er það?“ spurði hún. Hún brosti og munnvikin titruðu. „Ég veit ekki. Þetta virðist svo grimmilegt og ... ég get ekki að því gert, svo rangt. Ég elska manninn minn og barnið og ég trúi Walt þegar hann segir að við eigum eftir að búa í fínasta hús- inu í Bangor. Svo kem ég hingað og lit á vesal- ings fæturna þína ..." Hún var að fara að gráta aftur. „Það er eins og þeir hafi lent í hakkavél og þú ert svo horaður..." „Nei, Sara, ekki.“ „Þú ert svo horaður og það virðist rangt og grimmdarlegt og ég hata það, ég hata það, af því það er ekki rétt, ekkert af því!“ „Stundum er ekkert rétt, býst ég við,“ sagði hann. „Stundum verður maður að gera sitt besta og reyna að lifa við það. Farðu og vertu hamingju- söm, Sara. Og ef þig langar að koma í heimsókn, komdu þá.“ „Ég geri það,“ sagði hún. „Fyrirgefðu grátinn. Ekki sérlega upplífgandi fyrir þig, ha?“ „Þetta er allt í lagi,“ sagði hann og brosti. „Farðu að hætta þessari kókaínneyslu, elskan. Nefið á þér dettur af.“ Hún hló við og hallaði sér skyndilega fram og kyssti hann á munninn. „Ó, Johnny, láttu þér batna.“ Hann leit hugsandi á hana. „Þú skildir hann ekki eftir," sagði hann. „Skildi hvað eftir?" Hún gretti sig undrandi. „Giftingarhringinn þinn. Þú skildir hann ekki eftir í Montreal." Hann hafði borið höndina upp að enninu og neri blett yfir hægra auganu með fingrunum. Skuggi féll af handleggnum og hún sá i hjátrúarótta að andlit hans var hálfbjart, hálfdimmt. Það minnti hana á hrekkjavökugrímuna sem hann hafði hrætt hana með. Hvernig gat Johnny vitað að þau Walt höfðu farið til Montreal í brúðkaupsferð. Nema Herb hefði sagt honum það. En aðeins þau Walt vissu að hún hafði týnt giftingarhringnum sínum á hótelherberginu. Enginn annar vissi það 12. TBL. 1991 VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.