Vikan


Vikan - 13.06.1991, Síða 48

Vikan - 13.06.1991, Síða 48
JONA RUNA KVARAN Frh. af bls. 47 vera þrátt fyrir augljóst svekk- elsi í bili. Þú verður örugglega hissa ef þú gefur sjálfri þér þetta tækifæri til sjálfsviðkynningar um tíma án allra tengsla við hitt kynið sem bersýnilega eru bara ekki tímabær þó góð geti verið og notaleg á öðrum og ákjósanlegri tímamótum í lífi þínu. MANNGERÐ OG MÖGULEIKAR Við íhugum að lokum með inn- sæi mínu það sem hugsan- lega kann að vera inni fyrir öll- um átökunum, svona til gam- ans og kannski einhvers gagns líka. Þú virðist vera frekar djúpt hugsandi persóna með sterka innri þörf til að sundurgreina og láta rökin fremur ráða en tilfinningasemi sem þó er til staðar eins og kemur fram í pirringnum til mömmu þinnar og hennarvið- horfa og svo sektarkenndinni vegna strákanna. Rök eru þó trúlega sterkara afl í þér eins og er og þess vegna áttu svolítiö erfitt með sjálfa þig í augnablikinu. Rökin tengjast heilbrigðri skynsemi sem þú virðist eiga f yfirskömmtum ef eitthvað er. Þú viröist vera mjög leitandi persónuleiki og þarft örugg- lega að vera sjálfri þér sam- kvæm í sem flestu þannig að þér falli sjálfri það sem kemur sem afleiðing af hugmyndum þínum um hvað er rétt og rangt á hinum ýmsu tilvikum, ekki síst í mannlegum sam- skiptum. Þú virðist nokkuð ráðrík og stjórnsöm og átt þess vegna sennilega mjög erfitt með að lúta stjórn ann- arra. Af þessum ástæðum væri klókt að byrja sem fyrst að styrkja stoðir góðra mark- miða vegna tækifæra og möguleika framtíðarinnar sjálfri þér til handa. Sennilega áttu auðvelt með að nota hugann og skriftir af hvaða tagi sem væri gætu reynst þér mjög auðveldar, jafnvel skapandi skriftir líka, svo sem ritstörf ýmiss konar. Þú ert mjög auðsæranleg sýnist mér og af þeim ástæðum geta orð annarra haft mikil áhrif á þig og orðið að fjöllum í huga þér ef þú gefur (Deim of mikið tilfinningalegt líf. Þú verður sennilega býsna háð væntan- legum lífsförunaut, án þess þó að hverfa inn í eitthvert ösku- buskuhlutverk. Eins er ekki ósennilegt að þú viljir halda fast utan um mögulega sambúð þegar að því kemur, vegna eðlislægrar íhaldssemi sem verður senni- lega mjög ríkjandi þáttur hjá þér eftir því sem þú eldist og þroskast meira. Hvaö varðar það óræðna í tilverunni ertu sennilega næm á áhrif frá öðr- um en ekki óþægilega og gæt- ir verið nokkuð dreymin. Þú virðist staðföst en mættir vera kátari, gætir jafnvel verið dálítið mislynd á köflum. Eins er trúlega mikilvægt fyrir þig að hlúa að líkama þínum með heppilegri hreyfingu og mataræði sem fremur tengist hollustu og einfaldleika en öðru. Vilji þinn gæti reynst þér mikilvæg lyftistöng á erfiðum augnablikum í lífi þínu vegna þess hvað hann virðist sérlega sterkur. Þú sérð að þér er ekki alls varnað og engin ástæða til að vorkenna þér að finna út hvað þú vilt gera við líf þitt og augljósa möguleika. í smá- framhjáhlaupi gæti tíminn á milli tuttugu og tuttugu og sex ára reynst skipta sköpum hvað framvindu framtíðar þinnar varðar og sennilegt að þar breytist viðhorf þín mjög þér í hag. Eða eins og skapstóra stelpan sagði eitt sinn ( hálf- gerðri fýlu þegar henni leiddist nöldrið í kringum hana: „Elsk- urnar mínar, hafið engar áhyggjur af mér, ég veit hvað ég vil, svo fremi að þið bara treystið mér. Málið er bara að ég eyði alltof mikilli hugsun í það sem kemur málunum ekkert við og þess vegna virðast áhrif ykkar LAUSN SÍÐUSTU GÁTU verða ofan á eitt augnablik. Að sjálfsögðu vara þau skammt þvf ég hristi þau af mér létt og lipurlega ef mér henta þau ekki. Sjálfstæðið er mér nefnilega í blóð borið.” Guð gefi þér trú á það sem réttsýnast er og heil- steyptast í eigin fari. Með vinsemd, Jóna Rúna. Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu Rúnu og rithandarlestri og þvi miður er alls ekki hægt að fá þau í einkabréfi. Utanáskriftin er: Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104 Reykjavík. INNSÆISNEISTAR GULLS ÍGILPI ros er eitt af því sem við finnum flest að skiptir töluverðu máli fyrir andlega líðan. Við finnum mörg greinilega, þegar brosað er að tilefnislausu til okkar, að eitthvað gerist innra með okkur, eitthvað sem veldur vellíðan. Það eru augnablik í lífi ok.kar flestra sem eru á stundum nokkuð erfið og valda ókyrrö og vanlíðan. Slíkt ástand byrgjum við jafnvel innra með okkur. [ þannig hug- arástandi getur verið afar upp- örvandi að fá elskulegt bros, jafnvel óvænt frá óviðkomandi persónu. Þessi brosmildi ein- staklingur þarf alls ekki að gera sér grein fyrir því að með Ijómandi andliti sínu átti hann þátt í að auðvelda okkur við- kvæmt innra ástand. Á þessu sést að það er gulls ígildi að temja sér glaðlegt við- mót að staðaldri ef kostur er, þó launin séu óræð. Það < < Z q; < O c£ ID O ZD l_L_ o sem til baka kemur eru hlýjar hugsanir þess sem við brosinu tók og fann til vellíðunar fyrir vikið. Hann sendir oftast frá sér óafvitandi þakkláta útgeisl- un hugsana til baka og þær ylja tvimælalaust andlega þeim sem brosið gaf. Bros- mildin hjá viðkomandi vex að sjálfsögðu sem afleiðing af þessari góðu víxlverkun já- kvæðra viðbragða. Góður hugur annarra okkur til handa er ómetanlegur. Brosmildar manneskjur eru því einstak- lega líklegar til að auðvelda öðrum og gleðisnauðari per- sónum lífið. Sjaldan verður slík viðleitni þó mæld með hefðbundnum aðferðum. Við finnum líka á augnablikum andstreymis hvað getur verið erfitt að brosa, hvað þá hlæja. Við finnum jafnframt að ef okk- ur tekst það líður okkur mun betur fyrir vikið. Ekki er ama- leg sú tilhugsun að í eigin van- líðan gætum við með einu brosi hugsanlega orðið öðr- um til andlegs ávinnings með tilraun til viðmóts sem er greinilega kærleikshvetjandi eins og brosið svo sannarlega er. Einmitt á augnabliki þunga, sem hvílir yfir sálinni, er gott að vera minnugur þess að öll él birtir upp um síðir - fyrr trú- lega ef við reynum að finna til gleði þó tilefnið sé lítið og óverulegt þrátt fyrir allt. Jafn- vel brosað í gegnum tárin. Þau okkar sem óskum að hlúa að vellíðan okkar og ann- arra ættum að ígrunda alvar- lega áhrifamátt brossins. Það verður að teljast kostur að íhuga gildi þeirrar uppörvunar sem í brosinu getur leynst, hvort sem brosað er við okkur eða við brosum til annarra. Það er indælt að sækja styrk í þannig viðmót á milli manna. í þjóðfélagi veraldarhyggju get- ur verið góð tilhugsun að eiga kost á annars konar verðmæt- um og ekki síður mikilvægum. Þau kosta ekki neitt nema vilja til að geisla innan frá. □ 48 VIKAN 12.TBL. 1991

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.