Vikan


Vikan - 13.06.1991, Síða 57

Vikan - 13.06.1991, Síða 57
gerðir af tónleikahöllum þar sem hlýða má á allt frá risa- hljómsveitum til einleikaratón- leika. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í leiklistar- lífinu þar sem yfir fjörutíu leik- listarhús eru starfandi í Hamborg, lítil leikhús til stórra óperuhúsa, sem hafa sem dæmi til sýninga söngleiki eins og Cats sem sýndur hefur verið í fjölda ára og Phantom of the Opera sem sýndur er í Neue Flora leikhúsinu. Það tekur um tvö þúsund manns í sæti og er eitt stærsta hús sinnar tegundar í Evrópu. Báðir þessir söngleik- ir eru eftir hinn þekkta höfund Andrew Lloyd Webber. Undirritaður fór á síðamefnda söngleikinn sér til mikillar ánægju en hann er settur upp af þvílíkri snilld að orð fá varla lýst. Nýjustu tækni er beitt til hinns ýtrasta til að nálgast full- komnun á þessari uppfærslu. Gert er ráð fyrir af forráða- mönnum hússins að söng- leikurinn, sem nýiega er byrjað að sýna, muni ganga allavega næstu tfu árin, svo góðar við- tökur hefur hann fengið. Ekki má gleyma listasöfnun- um sem þarna eru af öllum stærðum og gerðum, bæði í Elsta hús Hamborgar 372 ára og jafnframt þaö minnsta. Það er um 39 fermetrar að flatarmáli á þremur hæðum. Þar er nú rekin verslun og er óhætt að fullyrða að vandfundið sé annað eins úrval af áfengisteg- undum og þar. einkaeign og þess opinbera og væri hægt að eyða heilli mannsævi í að skoða. Þeir sem ekki eru orðnir saddir eftir að hafa gætt sér á listuppákomum Hamborgar ættu að hafa orð Heinrichs Heine í huga sem hann lét af vörum falla fyrir um tvö hundruð árum: „Gestrisni Hamborgar- búa er að hætti enskra og mat- ur þeirra er himneskur." Enn f dag er hægt að fá himneskan mat á sælkeraveit- ingahúsum borgarinnar, hvort sem um er að ræða frábær fisk- veitingahús eða rómantíska matsölustaði með þjóðlegan mat á borðum. Ef áhuginn bein- ist ekki þangað eru um átta hundruð veitingahús sem bjóða gesti velkomna að snæða mat að hætti þjóða í öllum heims- hornum. Þar má meðal annarra nefna Grikki, ítali, Kínverja, Ind- verja, Japani og Suður- Ameríkubúa. Þegar verslunum og veitinga- húsum er lokað vaknar Ham- borg heldur betur til lífsins og fyllist af nátthröfnum. Neonljós gleðihverfisins St. Pauli og Reeperbahn kvikna til að aug- lýsa það sem þar stendur til boða. Þar er að finna allt frá fatafellu- og kynlffssýningum til hafnarkráa og diskóteka. Þegar fer að sjást til sólar á ný og nýr dagur hefur göngu sína geta nátthrafnarnir brugðið sér f fiskuppboðshöllina í morg- unverð og hlustað á lifandi tón- list meðan þeir snæða. í Hamborg er eitthvað á seyði allan sólarhringinn og hún tekur opnum örmum þeim sem hana vilja sækja heim. adidas SPORTLÍNAN 12. TBL. 1991 VIKAN 55

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.