Vikan - 27.12.1991, Side 12
AF ERLENDUM VETTVANGI
VOiVU
smm
1992
Eigum góðan bandamann í
Dönum...
Arne Treholt að losna úr
steininum?
Kemur Uffe-Elleman Jensen
til að miðla málum?
SYNGUR OG HVÍN í
SVÍÞJÓÐ
■ Af Noröurlöndunum er það
Svíþjóð sem verður mest í
umræðunni á næsta ári. Þar
eykst verulega andstaða gegn
fólki af erlendum uppruna,
sem þar er búsett, og mun
löggæsla verða efld í flestum
borgum og bæjum í sunnan-
verðu landinu af þeim sökum.
■ Miklir atburðir munu eiga
sér stað f eða við Scandic
Crown hótelið í Stokkhólmi og
valda þeir miklu uppistandi í
höfuðborginni.
■ Hætt verður við meiri háttar
umferðarumbætur í sam-
göngukerfi Gautaborgar
vegna fjárskorts.
■ Svíar ná samstöðu við
bandarískt stórfyrirtæki um
þróun á bílategund sem verð-
ur eftirsótt í Bandaríkjunum á
næstu árum.
■ Miklar deilur verða í Sví-
þjóð um vikulegan vinnu-
stundafjölda sem önnur Evr-
ópulönd koma sér saman um.
Ekki sér fyrir endann á þess-
um deilum á árinu.
■ Stuðningsmenn hins nýja
forsætisráðherra Svía munu
skora á hann að framfylgja
áformum sem hann hafði uppi
í kosningabaráttunni og munu
vinsældir hans dvína veru-
lega.
■ Þess verður krafist að
svokallaður hátekjuskattur á
einstaklinga verði afnuminn
fyrir lok ársins í stað þess að
afnema hann í áföngum. Allar
hömlur á erlendum fjárfesting-
um verða afnumdar þar í landi
fyrir árslok.
■ Sænski konungurinn mun
eiga þátt í lausn milliríkjadeilu
í sunnanverðum Sovétríkjun-
um eða annars staðar í Aust-
ur-Evrópu.
DANIR DUGA BETUR
■ (málum Evrópubandalags-
ins og áframhaldandi samn-
ingum okkar munum við ís-
lendingar eiga góðan
bandamann í Dönum þegar
upp kemur umræða um að (s-
lendingum sé skylt að leggja
fram skerf til sameiginlegra
varna í Evrópu.
■ Endurgerður bústaður,
Sognfri Slot, sem Danadrottn-
ing hyggst taka í notkun fyrir
erlenda gesti, verður ónothæf-
ur sökum reimleika að nóttu til.
■ Uffe-Elleman Jensen, ut-
anríkisráðherra Dana, mun
heimsækja ísland á árinu
þeirra erinda að miðla málum í
deilu sem snertir (slendinga
og EES-samninginn viö EB.
■ Heitt sumar í Danmörku en
kalt í öðrum Evrópulöndum
fyllir öll hótel og baðstrendur f
Danmörku. Mikið verður um
ferðir frá íslandi til að njóta
sólskins og sjóbaða þar.
NORÐMENN NJÓTA
ÁVAXTANNA
■ í Osló fá fátæklingar og ör-
eigar mikinn happavinning
þegar ákveðiö verður að
byggja sérstakar íbúðir þar
sem þeir geta búið frítt og
fengið ókeypis mat og að-
hlynningu.
■ Arne Treholt verður látinn
laus á árinu og máli hans talið
endanlega lokið.
■ Norsku konungshjónin fara
í heimsókn á suðlægar slóðir
á árinu og lenda í nokkrum
hrakningum en óvænt aðstoö
verður til aö bjarga þeim heil-
um heim.
■ Nýjar oliulindir í norðan-
verðum Noregi munu gefa
íbúum landsins og fyrirtækjum
endurnýjaðan þrótt og þar í
landi hefst enn eitt framfara-
skeið, líklega það mesta hing-
að til.
12 VIKAN 26. TBL. 1991