Vikan - 27.12.1991, Qupperneq 42
TEXTI: HJALTI JÓN SVEINSSON MYNDIR: BINNI
J
/
J Jl.
JJ J-J
1/^1/
J_JJj_
r—I
rJ
r
\ \ ~v . ^
uhjJA
i /
rJ
i
J Jj J
v
J \ \ r ) -J 1 / ■ \ pJ r ) , \ \
AJJ 'J j J^J | \ J_ JjÍ _ J 1 r
„MZ gaman, gaman er / í góðu veðri að leika sér“
Börnin í leikskólanum Yl njóta þess að vera úti í guösgrænni náttúrunni. Þau láta smá rigingardembu og örlítinn
vind ekki trufla sig. Hér eru þau ásamt félaga sínum Snorra Traustasyni.
Austan við Reykjavík, (
nágrenni Lækjarbotna,
er rekinn leikskólinn
Ylur. Hann er í landi Kópavogs
og eru byggingarnar í eigu
bæjarféiagsins. Um margra
ára skeið hét staðurinn Kópa-
sel og var rekinn á vegum
bæjarins en nú hefur starf-
semin breyst nokkuð. Þar er
þó enn leikskóli eins og þá,
eða dagheimili réttara sagt, en
það er sjálfseignarstofnunin
Ásmegin sem annast rekstur-
inn. Ásmegin er félagsskapur
ungs fólks sem heillast hefur
af kenningum mannvinarins
og heimspekingsins Rudolfs
Steiner, sem uppi var í Þýska-
landi á fyrri hluta þessarar
aldar. Kópasel er nú rekið sem
Waldorf-leikskóli en slíkir eru
nú starfandi víða í Evrópu
undir þessu nafni, reyndar
ekki bara leikskólar heldur
einnig fjölmargir grunnskólar.
EINI WALDORF-SKÓL-
INN Á LANDINU
í riti, þar sem fjallað er um
kenningar Rudolfs Steiner,
segir meðal annars: „Waldorf-
skólinn er byggður til að mæta
þörf mannsins til að læra og
þroskast, svo hann finni sinn
stað í samfélagi við aöra
menn, - en ekki til að mæta
kröfum atvinnulífs né ríkis-
valds. I Waldorf-skólanum er
ekki kennd einhver ein heim-
speki eða lífssýn, heldur eru
þar kenndar sömu námsgrein-
ar og í grunnskólanum, - en
þær eru kenndar öðru vísi.
Mikilvægt finnst okkur að í
verkefnum sé jafn mikið fyrir
höndina, hjartað og höfuðið,
jafnvægi milli hins verklega,
listræna og vitsmunalega.
Mikil rækt er lögð á tengsl við
menningu, umhverfi og náttúr-
una þar sem skólinn er stað-
settur. Lögð er áhersla á að
Waldorf-skólinn sé frjáls skóli,
sem rekinn er af foreldrum og
kennurum og sé eign foreldra,
kennara og þeirra barna, sem
42 VIKAN 26. TBL.1991