Vikan - 27.12.1991, Síða 63
HVER VILL KAUPA
BARNIÐ MITT?
BITUR RAUNVERULEIKINN f RÚMENÍU
1
<D
5
o
>
Fátækt neyðir margar
mæður til þess að selja
börnin sín til þess að
hata í sig og á og ekki síst ef
þær eiga fleiri börn. Kaupend-
ur skortir ekki, fólk með seðla í
vasanum streymir til Rúmen-
íu. í þessu fátæka landi getur
sá keypt barn sem veifar doll-
araseðlum.
Georgiza seldi yngsta son
sinn til þess að geta gefið eldri
sonum sínum að borða. -
Gerðu það, kauptu hann ...
bara 3000 dollara. (175 þús-
und ísl. kr.). Hann heitir lli og
er sjö vikna gamall. Ég á ekk-
ert handa honum að borða og
hinir drengirnir mínir svelta.
Georgiza réttir fram drenginn
og sýnir væntanlegum kaup-
endum hann. Hún reynir að
brosa en það er sorg í brosinu.
Hún er bara 28 ára en lítur út
fyrir að vera fimmtug, þreytt,
með gráleita húð, innfallin
augu og slitið hárið stendur út
í loftið. Maðurinn hennar yfir-
gaf hana og það er neyðarúr-
ræði fyrir hana að selja lli litla.
Helst af öllu vildi hún eiga
hann en þá væru miklar líkur á
því að þau mundu öll deyja úr
hungri og kulda.
Georgiza býr í bænum
Galbinasi sem er 45 kílómetra
suðvestur af höfuðborginni
Búkarest. Hún býr í lítilli íbúð
og þar er ekkert rafmagn og
lélegar hreinlætisaðstæður.
Mjólk hafa þau ekki fengið í
mánuð né heldur grænmeti.
Ilí er ekki eina barnið sem
selt hefur verið á þessu ári.
Börn eru orðin algeng sölu-
vara í Rúmeníu. Yfir sex þús-
und börn hafa verið seld á
þessu ári, sum fyrir allt að
fimm þúsund dollara, önnur
fyrir nokkur hundruð dollara.
Að mæður neyðist til þess að
selja börnin sln til þess að sjá
sér og sínum farborða segir
slna sögu og bara brot af erf-
iðleikunum sem rúmenska
þjóðin á við að etja. Barnlaus
hjón hvaðanæva úr heiminum
streyma til landsins. Loksins
eiga þau möguleika á að eign-
ast barn og finnst engin hindr-
un að þurfa að kaupa það.
Flest hafa þau beðið í mörg ár
eftir barni til ættleiðingar og
ekkert gengið.
Hótelið Presidente í Búka-
rest er miðstöð þessarar
barnasölu. Þar rekumst við á
kaupendur frá mörgum
löndum, ftalíu, Englandi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi
og víðar. Þetta eru barnlaus
hjón frá ríkum löndum. Mæð-
urnar sitja í anddyrinu með
börnin sín og fólkið gengur á
milli þar til það finnur álitleg-
asta barnið. Nýju foreldrarnir
þurfa að bíða eftir að ættleið-
ingarpappírarnir verði tilbúnir
og það getur tekið nokkra
daga en því má flýta eins og
öllu öðru, með dollurum.
Allir Ijóma af hamingju.
Börnin lika. Þau eru nýþvegin,
í nýjum, hreinum fötum og
hafa fengið mjólk að drekka og
banana að smakka. Þau hafa
líka eignast leikföng í fyrsta
sinn á ævinni. Þegar pappír-
arnir eru tilbúnir er brunað út á
flugvöll og heim í nýtt land. Ný
og björt framtíð blasir við lli og
öllum hinum rúmensku börn-
unum. Hefðu þau verið um
kyrrt í Rúmeníu hefði senni-
lega engin framtíð beðið
þeirra. □
Georgiza varð að
selja yngsta barnið
sitt, lli, sjö vikna
gamalt til, þess að
eiga mat handa hin-
um tveimur.
26. TBL. 1991 VIKAN 63