Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 74
SONIA RENARD
Frh. af bls. 41
príla í höggmyndunum en þaö
myndi maður aldrei sjá í Evr-
ópu. Listin er öllu æöri i Evr-
ópu en þaö tel ég slæmt
vegna þess aö ég álít hlutverk
listamannsins aö kenna fólki
að meta list. Rétta leiðin til
þess er greinilega ekki sú aö
segja: Þú skilur þetta ekki, þú
ert of vitlaus til þess. Þá reiðist
fólk og neitar að kynna sér
málið frekar. List er rétt eins
og hvaö annaö; til að kunna aö
meta hana þarf maður aö læra
á hana. Þó er ég alls ekki aö
segja að ég sé hlynnt „uppeld-
isfræöilegri" list þvf mér finnst
rangt af listamanninum að
gera minna úr hæfileikum sín-
um en efni standa til.“
Hver eru framtíðaráformin?
„Það hefur gengiö afar vel
hjá mér undanfarin tvö ár.
Fram aö þeim tíma átti ég ekki
sérlega auðvelt uppdráttar en
þegar hlutirnir fóru aö gerast
geröust þeir hratt. Straum-
hvörfin uröu eftir þessa vinnu-
stofu myndhöggvara í Svíþjóð
og nú er fólk farið aö sækja til
mín.
í janúar fer ég svo til Mexíkó
og held þar einkasýningu í
galleríi í Mexíkóborg. Ég fer
aftur til Mexíkó í september á
næsta ári því þar verður haldin
fjórða alþjóðlega vinnustofa
myndhöggvara.
MIKLIR MÖGULEIKAR Á
ÍSLANDI
Hvenær ætlarðu svo að koma
aftur til fslands?
„Eins fljótt og auðið er. Ég
hef að vísu skyldum að gegna
í Hamborg því ég útbý glugga-
skreytingar og þær verslanir
sem ég starfa við eru búnar að
gera við mig samninga fyrir
veturinn. Meðal annars lét ég
flytja út hraunmola í júní og þá
gæti ég vel hugsað mér að
nota í skreytingar. Það er þó
sjaldan sem ég fæ að ráða
ferðinni í því starfi, oftast á ég
að skapa einhvers konar
þema og oft eru tjáningunni
miklar skorður settar. Þetta er
þveröfugt við list. Listin snýst
um að segja það sem maöur
sjálfur vill; ekki um að rétta
fólki íþað sem það vill fá. Ég
starfa meðal annars fyrir stóra
bókabúö í Lubeck og fyrir
íþróttavöruverslun. Á dögun-
um gerði ég stóra skreytingu í
tilefni af útkomu plötu meö
Deep Purple í Þýskalandi.
Meö ferðalögunum verður
því erfitt fyrir mig að finna tíma
til að komast til íslands en mig
langar til að koma aftur næsta
sumar. Svo vonast ég til að
geta haft sýningu í Nýlista-
safninu eftir eitt eða tvö ár og
stefni að því. Salurinn þar er
afar fallegur og allt öðruvísi en
aðrir íslenskir salir. Ég tel
mikla möguleika fyrir hendi á
íslandi. Skipulagningin á
höggmyndasýningunni í Hafn-
arfirði var til dæmis til mikils
sóma og þar tók ég eftir því að
fólk var alveg reiðubúið að
koma með vinnu- eða fjár-
framlag.
FORRÉTTINDI OG
FÓRNIR
Þegar ég spyr hana hvort það
séu ekki forréttindi að fá að
flakka um heiminn sem eftir-
sóttur listamaður lítur hún á
mig eins og svolítið hissa á að
konunni skuli detta þessi vit-
leysa í hug.
„Liklega, en þetta hefurekki
verið auðvelt. Eins og er verð
ég að ferðast mikið vegna
þess að ég er að skapa mér
nafn. En til þess að það sé
hægt get ég hvorki gift mig né
eignast börn og það gæti vel
verið erfitt val að standa
frammi fyrir. Þeim helmingi
lífsins verð ég að fórna eins og
á stendur. Þegar illa gengur,
Að störfum
í vinnu-
stofu lista-
manna í
Straumi þar
sem Sonju
líkaði svo
vel vistin,
að hún
óskaði eftir
að fá að
koma þang-
að strax aft-
ur sem hún
og gerði.
maður selur ekkert og fólk
sýnir verkum manns engan
áhuga, þá spyr maður sig oft
hvort maður sé að gera rétt.
Ég hef þurft að beita sjálfa mig
hörku en ég sé ekki eftir neinu.
Ég hef komið til svo margra
landa og séð svo marga staði,
hitt svo margt fólk og fengið
alla þá ánægju sem starfinu
fylgir. Þó oft séu erfiðar stundir
kann ég að meta líf mitt og
lífsmáta."
74 VIKAN 26. TBL.1991