Menntamál - 01.09.1936, Page 12

Menntamál - 01.09.1936, Page 12
MHNNTAMÁI. 90 allra bezl skilyrði lil að ala upp börn sín til hins göfgasta og fullkomnasta, sem með þjóðinni býr. Þessi skilyrði greinum vér og athugum nokkru nánar. Fjölskyldan er lieild ofin inn í þjóðbeildina. Hún er ekki mynduð af ásetningi fremur en þjóðin sjálf, heldur orðin aí' óræðri þrá. Heildgerð fjölskyldunnar og lifræn þróun greinir hana frá öllum ásetningsfélögum (Zweck- verbánde). Ef fjölskyldan væri ekki gagntekin af siðgæðis- og menningaranda þjóðarinnar, myndu börnin, sem hún rlur upp, verða albáð einstaklingshyggjunni, sem í eðli sínu leitasl við að sprengja lieildgerð þjóðfélagsins. íslend- ingar bafa frá upphafi lineigzt að einstaklingshyggju, og ber saga þeirra Ijós dæmi kosta hennar og bresta. Eðlis- bundinn tilgangur fjölskyldunnar er sá, að skila þjóðinni íélagslega þroskuðum einstaklingum, sem með glöggri skylduvitund og næmri ábyrgðarlilfinning starfi í þágu þjóðheildarinnar. Vitrir Islendingar hafa fullyrt, að fram- tíð þjóðarinnar væri undir ]ivi komin, að bver einstakling- . ur í þjóðfélagi voru sé á sinu sviði meiri afreksmaður en cinstaklingar stærri þjóða. Þelta er hverju orði sannara. En veruleikinn samsvarar þvi að eins þessari fögru liug- •sjón, að bver maður allt frá fyrslu bernsku eigi þess kost, að tileinka sér siðgæðisanda þjóðarinnar og menningu. Ekki með fræðinámi einu, heldur i daglcgri umgengni við fólk, sem á óhvikull félagslyndi i skajigerð sinni. Ekkert félag og engin stofnun er jafn vel fallin til að veita þessa mcnntun sem fjölskyldan. En lil þess að vera starfinu fyllilega vaxin, þarf fjölskyldan fyrst og fremst að eiga skilning á þjóðlegum verðmætum. Aðeins þannig getur hún glætt félagslyndi og félagsvitund vaxandi kynslóða. Hið tengjandi band fjölskyldunnar er félagshneigð ásl (amor societats). Ástin skerpir skyggni fyrir kostum unnenda. Um leið og hún uppgötvar siðgæðisvitund ást- vinarins, hefur hún sig yfir ástríðuþrungna, óræða hvöl. Siðgæðisvitund einstaklingsins grundvallar persónuleika

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.