Menntamál - 01.09.1936, Side 34
112
mknntamAl
seni liann bjó hér i bænum. Hann er kátur og hress að
vanda og leikur á als oddi.
„Hvers vilt þú þá helzt spyrja?“ segir hann.
Fyrst vil eg að þú segir lesendum Menntamála eitthvað
um sjálfan þig. Sjöholm hristir höfuðið og er augijóst, að
hann kýs heldur að ræða um önnur efni, en vér itrekum
spurninguna og fáum eftirfarandi svar:
„Eg er sonur fálæks bónda, fæddur í Suður-Svíþjóð
árið 1877. Tuttugu og eins árs gamall gerðist eg barna-
kennari, en fékk fasta stöðu við barnaskólann í Gauta-
borg árið 1898. 1910 réðist eg að kennaraskólanum í
Gautahorg. En 'það gerðist með þeim hætti, segir hr. Sjö-
holm, og er sýnilegt að sú endurminning er honum liug-
ljúf, að Iv. A. Westling rektor kennaraskólans í Gaula-
horg, er menn tclja einn hinn merkasta andlega leiðtoga
okkar Svía, iiitti mig á götu og sagði: „Heyrðu, það er
iaus staða við kennaraskólann, viltu sækja um hana?“
„Það iiefir mér ekki dottið í hug.“
„Jæja, en þú þarft aðeins að segja eitt já, þá er staðan
þín.“
„Eg sagði já og fékk stöðuna,“ segir hr. Sjöiiolm með
sinni venjulegu gamansemi.
Þú hefir verið afkastamikill rithöfundur. Hvað liefir
þú skrifað margar bækur?
„Á mínu nafni liafa komið út 10 bækur, en auk þess
liefi eg í samvinnu við Goés samið 4 flokka vinnubóka,
alls 21 hefti.“
Hvað vildir þú segja um sumarnámskeið þín fyrir
kennara ?
„Fyrsta námskeiðið af þessu tagi hélt eg 1915. Síðan
hefi eg haldið námskeið á hverju sumri i 21 ár. Þessi nám-
skeiðsstarfsemi er mjög minningaríkur og mikilsverður
þáttur úr lífi mínu“. Það má víst hiklaust bæta því við, að
þessi starfsemi hans er einkar mikilsverður þáttur í þró-
unarsögu barnaskólanna, ekki einungis í Svíþjóð, heldur