Menntamál - 01.09.1936, Qupperneq 45
MENNTAMÁL
123
Tillögur um námsdvalir kennara
i inniendum skólum.
„Hollur er heiinafenginn baggi“.
í Menntamálum birtast öðru bvoru ferðaminningar
kennara, sem hlotið liafa styrk til dvalar og ferðalaga í
öðrum löndum, eða brotist i því á eigin spýtur „að sigla“
sem svo er kallað.
Um ferðir þessar er allt gott að segja, og vafalaust bef-
ir orðið að þeim mikill og góður árangur í skólastarfi
kennara, en einkum auka þessar ferðir kennurum víðsýni,
og eru þeim lioll upplyfting frá daglegu starfi. En það dylst
engum, að mikið fé eyðist i þessi ferðalög, og gcgnir það
furðu, hve margir kennarar liafa getað klofið það með
litlum styrk, en bitl er líka víst, að það er einkum ein-
hleypa fólkið, menn og konur, sem liafa lök á að veila
sér þetta, en fjölskyldufeður og gitfar konur, sem við
kennslu fást, bafa ekki tök á slíku. — Ég veit þvi,
að mikið skortir á það, að þessar ferðir færi stéttinni
i lieild þekkingu og bagnýta leikni í störfum á borð
við kostnað og tímaeyðslu. — Uað er löngu viður-
kennt, að kennurum öllum, en þó sérstaklega þeim, sem
vinna að kennslu l)arna, er lífsnauðsyn á uppörvun og
sifelldri æfingu í starfi sínu, og þeir verða starfs sins vegna
að fylgjast með öllum nýjungum á sviði uppeldismála og
skólastarfs, og bafa tök á að tileinka sér þau nýmæli, er
til beilla borfa. -—- Þetta er margsagður sannleikur, og í
þessu skyni eru allar utanferðir kennara farnar.
En ég hefi oft hugsað um það, í sambandi við þessar
utanferðir kennara og fleiri mál stéttarinnar, að íslenzkir
kennarar gerðu of lítið að þvi að læra bver af öðrum.
Strjálbýlið veldur þvi, að fáir kennarar út um land eiga