Menntamál - 01.09.1936, Side 56

Menntamál - 01.09.1936, Side 56
134 menntAmál stendur í þessari grein, en það er þá af þvi, að þið skiljið vitleysuna. Svo almáttugur er skilningurinn, að jafnvel vitleysuna er hægt að skilja. Minnið skuluð þið hafa í heiðri, og ekki leggja það við liégóma og hafa það eitt orðrétt eftir, sem á þann lieiður skilið. En það sem að stíl og efni skarar fram úr, skal líka lært. Það auðgar manninn að máli, smeklc og hugmyndum, og á sinn þátt í að skapa hann í mynd þess, sem hann dáir og þráir. V. Mikið af námsárunum fer í bóklestur. Það er því auð- vitað, að það er ekki sama hvernig er lesið. Ég á ekki við hvernig sé lesið í hevranda hljóði. Lestur getur þýtt: liúslestur, og þá var lesið hátt með sínu lagi, og i harna- skólunum var til skamms tíma lesið hátt — með mis- jöfnu lagi. En nú er sem betur fer farið að tíðkast liljóð- lestur og hraðleslur, þó því sé misjafnlega tekið. En nú á tímum hins jirentaða syndaflóðs er hljóðlestur yfir- gnæfandi í daglegu hfi og hraðlestur nauðsynlegur. Það er jafnvel nauðsynlegt að gela lesið svo hratt, að vitundin slöðvist ekki við annað en það, sem lesandann varðar um. Hinn góðfúsi lesandi cr úr sögunni, sem af einskærri kurleisi við höfundinn og lotning fyrir prentlistinni ekki vill missa af einu orði, sem prentað stendur. Lesmálið var líka verðmætara i þvi, sem skrifað stóð. Það er ótrúlegur munur á leshraða, og þó er ekki talið að athyglin og skilningurinn fari aðallega eftir þvi, hvort hratt eða hægt er lesið. Einn nemandi getur lesið sexfallt hraðara en annar með jafngóðum árangri. Það er því mjög mikilsvert að auka leshraðann að því marki, sem athyglin ])olir. Hægur hljóðlestur á rót sína að rekja til hálesturs, eða öllu heldur til ofnáins sambands á milli tals og lesturs. Þeir lesa hægast, sem nnildra eða hreyfa varirnar til að niá hverju hljóði. Og þó ekkert hljóð heyr-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.