Menntamál - 01.09.1936, Side 61
MENNTÁMÁL
139
íslands, og hélt frain sömu meginstefnu í uppeldismálum
fyrir 3(h—40 árum, eins og nýskólamenn allra landa
lioða nú.
Því miður hefi eg hvorki heimildir né tækifæri til að
skrifa æfisögu Páls og lýsa honum, og er Jió full þörf á
að það sé gerl, svo sérkennilegur og merkur sem maður-
inn var. í þetta sinn vil eg aðeins minna kennarastéttina
á nafn hans og andlitsdrætti, og það, að liann bjó undir
starf okkar, sem nú vinnum að umbótum á uppeldiskjör-
um og rétti æslcunnar.
Páll Jóakimsson var umferðarkennari i Aðaldal og
fleiri sveitum í Þingeyjarsýslu um siðustu aldamót og
fram á fyrstu ár fræðslulaganna og skólaskyldunnar.
Þó mun liann aldrei hafa verið skipaður i opinbera kenn-
arastöðu. Hann liafði numið búfræði í Noregi og fékkst
við jarðabætur, vatnsveitur og landmælingar á sumrin,
en kenndi börnum á vetrum. Þótti hann afburða laginn
að kenna lestur, skrift og reikning, einkum börnum, sem
gekk nám erfiðlega eða þóttu „löt“ við jiað. Rrást ekki,
að Páll kæmi slíkum börnum á strik, ef þau voru til
náms hæf. En sumum þólti aðferðir hans ærið skrítnar.
Þegar Páll kom á hæ til kennslu, sagði hann börnunum,
að hann ætlaði að hjálpa þeim til að læra að lesa og
skrifa. Þau skyldu bara koma til lians, þegar þau vildu
skrifa eða stafa. Hann hafði enga fasta tíma og skipaði
hörnunum aldrei að lesa eða nema, en var jafnan til taks,
er þau vildu sjálf. Börn, sem orðin voru löt og leið á
stafastagli, komu ekki til Páls 2—3 fvrstu dagana. En
síðan brást ekki, að þau kæmu og bæðu að lofa sér að
stal’a. Á þessa leið voru öll vinnubrögð Páls við barna-
kennslu.
Páll Jóakimsson var mjög einkennilegur maður, á-
gætlega gáfaður, margfróður, ræðinn og rökvís. Jafnan
var hann lengst til vinstri i skoðunum og lét mörg mál
til sín taka. Vafalaust hefir hann ált laundrjúgan þátt í