Menntamál - 01.09.1936, Side 70
148
MENNTAMÁL.
JAPAN.
Reglugerð fyrir kennara. — Kennslumálastjórnin i Tokio hefir
nýlega kunngert eftirfarandi:
Kvenkennarar mega ekki vera karlkennurum samferða í skól-
ann.
Skólastjórar skulu hafa eftirlil með einkalífi kennara, sem
vinna undir stjórn þeirra.
Kennarar mega ekki giftast saman.
Ógiftir karlkennarar mega ekki vera l'oringjar fyrir nemenda-
samböndum stúlkna.
Karl- og kvenkennarar mega ekki fara í skemmtiferðir saman.
(The Schoolmaster, 14. maí 1936).
MEXICO.
a) Þjóðarherftrð gegn menntunarleysi. Ríkisstjórnin i Mexico
kunngerði 1. april s.l. áætlun um alþjóðar-lierferð gegn kunnáttu-
leysi almennings í leslri, þar sem skorað er á allar skólastjórn-
ir, ráðandi stjórnmálaflokk, verkalýðsfélög, sambönd kennara,
háskólanemendur og alla góða menn, að styðja þetta áform. Starf-
ið hefsl 1. maí ár hvert og heldur áfram til 9. sept. Fjöldi verð-
launa er veittur hreppsfélögum, skólum, námsstjórum, kennurum,
iðnfélögum og einstaklingum, er sýnt geta beztan árangur i því
að keniia sem flestum að lesa.
b) Socialistiskt uppeldi, ofstæki og trúarbrögð. Forseti Mexico,
L. Cardenas hershöfðingi, fór eftirlitsferð um ýms héruð lands-
ins. Fara hér á eftir nokkur ummæli hans um lilgang hins social-
istiska uppeldis: „Eg hygg, að nú sé tímabært að lýsa því yfir,
að ríkisstjórnin telur það ekki hlutverk sitt, að berjast gegn
nokkrum trúarbrögðum og ekki heldur að fyrirskipa sérstök
trúarbrögð. Því befir verið haidið fram, að sósíalistiskt uppeldi
berjist gegn trúarbrögðum og geri börnin fráhverf foreldrum sín-
um. Þetta eru helber ósannindi. Með sósíalistisku uppeldi er bar-
izl gegn ofstæki. Börnin eru alin upp lil skýrari vitundar um
skyldur sínar gagnvart samfélaginu og þau búin undir hina þjóð-
félagslegu baráttu (lífsbaráttuna), sem þau munu taka þátt i, er
þau ná aldri til þess að fá hlutdeild i framleiðslustörfum þ.jóð-
arinnar.
í menningarlitlum landshlutum hefir verið háð villandi áróð-
ursstarfsemi gegn sósíalistisku uppeldi, undir ]jví yfirskini, að það
beindist gegn trúarbrögðunum. Barátta gegn ofstæki er ekki sama
sem árás á trúarstefnur. Baráttan beinist aðeins að ])ví, að eyða