Menntamál - 01.12.1936, Side 3
Mcnntamál
IX. ár.
Okt.—Dr3.
1936.
Harmleikurinn a Spani.
Kveðja frá Kennarasambandi Spánar
(Asociacion Nacional del Magisterio Primario)
til þings Alpjóðabandalags kennara i Genf.
Madrid, 8. ágúst.
Kæru stéttarbræður allra landa.
Nú vinnið þér saman í borg alheimsfriðarins, Genf.
Þér ræðizt við um alþjóðleg viðfangsefni uppeldisins, í
því skyni, að tryggja lífinu meira réttlæti, meiri mann-
úð; þér leitizt við að treysta bönd allsherjar samvinnu.
Vér Spánverjar berjumst aftur á móti, að tilhlutun ör-
laganna, blóðugri baráttu, til þess að endurheimta með
lífsfórnum, það sem litið var á sem sjálfsagðan rétt
borgarans, arf allra menningarlanda heims.
Styrjöld vor er að vísu háð innan landamæra Spán-
ar, og Spánverjar eigast þar við. En eigi að síður er
hún af alþjóðlegum toga spunnin, ef orsakir og afleið-
ingar eru raktar hlutdrægnislaust.
Á líðandi stundu berjast féndur Spánar gegn hinum
raunverulega Spáni. Féndur Spánar eru fyrst og fremst:
Synir sérréttindanna, verjendur harðstjórnarinnar,
spjátrungar hersins, ósæmilegir þrælar vanans, þeir sem
blygðunarlaust selja samvizku sína, þ. e. a. s. í stuttu
máli, allir þeir, sem mynda úrhrak fólksins á Spáni.
Öfl eyðingar og upplausnar styrkja þá, sem gripið hafa
til vopna gegn hinum sanna Spáni, sem hyllir vinnuna,
lýðræðið og framfarirnar.
Svo, sem þér sjáið, kæru starfsbræður, þá er barátt-
11