Menntamál - 01.12.1936, Qupperneq 4
162
MENNTAMÁL
an, sem liér er luíd, skelfilegri en nokkur algengur sárs-
aukafullur og blóðugur atburður. Baráttan er háð um
örlög margskonar verðmæía, sem erií uppistaðan í þjóð-
lífsbyggingu vorri, og vér teljum það sóma vorn, að gefa 4
öllum heiminum fordæmi um þegnskap og hetjuskap
í baráttunni gegn ólöglegum öflum, er byggja tilveru
sína á ofbeldi.
Hin spænska alþýða fórnar örlát lífi sínu til varnar
almennu frelsi og fyrir háleita, siðferðilega liugsjón, er
samrýmist hinum helgustu hugmyndum mannsins.
Syndikalistar, kommúnistar, socialistar, lýðveldissinnar
og meðlimir vinstri flolcksins láta stjórnast af sameigin-
legri hugsjón, vinna saman með yfirvegaðri þrautseigju
og byggja hin liæstu varnarvirki, sem í mannlegu valdi
stendur, gegn valdatöku fascismans. Og fascisminn nær
ekki völdum, vegna þess, að hin spænska alþýða hefir
tekið háleita og fasta ákvörðun, og mun ekki leyfa neina
pólitíska valdatöku, sem ekki á rætur sínar í vilja
fólksins.
Stéttarbræður allra landa! Fulltrúi spænska Kennara-
sambandsins á þingi Alþjóðabandalags kennara mætir
ekki með yður, sem vinnið að því að skapa andrúmsloft
friðarins meðal þjóðanna. Hann er hindraður í að taka
þátt í störfum yðar, sakir þess, að liann er, eins og allir
góðir Spánverjar, neyddur til að berjast sársaukafullri
baráttu fyrir yfirráðum frelsis og réttlætis.
Undir herópinu: Friður mcðal allra þjóða og stríð á
hendur harðstjórum, hefir spænsk alþýða risið upp og
sú stund nálgast, þegar enginn fulltrúi harðstjórnar-
innar verður eflir á spænskri fold.
Ástæðurnar, sem eg hefi nú greint, eru nægilegar, kæru
starfsbræður allra landa, til þess að réttlæta fjarveru
mína frá þingfundum Alþjóðabandalags kennara. Og
þótt ég sé fjarverandi af knýjandi nauðsyn atvikanna,
er ég með hugann hjá yður, og ásamt yður á ég hlut-