Menntamál


Menntamál - 01.12.1936, Page 36

Menntamál - 01.12.1936, Page 36
194 MENNTAMÁL ritgerð mín, Beitráge zur Phonetik der island'ischen Sprache, kom út 1927, nema norski hljóðfræðingurinn Johan Storm. Hann tók eftir því um 1890, þegar hann var að lýsa sunnlenzku hljóðunum fyrir p, t, k, og t og k urðu að d, g, en p, hélzt óbreytt. (Englische Philologie, I, hls. 237). — Hinsvegar fann eg i áminnstri ritgerð, að k, i mínum austfirzka liarða framburði bæði milli sérhljóða og oft í öðrum stöðum, var lítið eitt styttra en p og t. Og við rannsókn á framburði Sunnlendingsins Arsæls Sigurðs- sonar (A Specimen of southern Icelandic speech, Oslo 1931) kom það ennfremur í ljós, að k oft sýndi raddaða sprengingu (opnun) á undan sérhljóði, þar sem t og p höfðu óraddaða sprengingu (opnun). En bæði stuttleiki samhljóðsins og tilhneiging til rödd- unar bendir til veiklunar þess; at-kvæði þess er að lin- ast upp, og er það því réttmæli, þegar alþýða manna kallaði þetta linmæli. k er frá náttúrunnar hendi veikast á svellinu, t og p koma á eftir. Eftir þeim gögnum, sem nú eru fram komin, er því óhætt að fullyrða, eigi aðeins að flestir breyti k í g, heldur einnig að linmælskan yfir- leitt hafi fyrst byrjað í orðum með k milli sérhljóða. Það eru raunar tvö atriði hér, sem taka þyrfti til íhug- unar, ef vera mætti að þau hefði einhver áhrif á liina mis- munandi tíðni villanna um p, t og k. Fyrst er það, að í ritmáli réttu kemur p, t aldrei fyrir milli sérliljóða, svo börnin sjá það aldrei fyrir sér í venjulegu prentuðu máli. Aftur á móti kemur g fyrir milli sérhljóða, t. d. loga, sigur, og þótt það sé hér auðvitað ávallt framborið sem önghljóð, þá sést það ekki í riti, og gæti þetta því ýtt undir ruglinginn með k—g. Annað atriðið er hin mismunandi tíðni þessara hljóða i máli. Og liver var tiðni hljóðanna í prófblöðunum? Hvað sem um k og t er að segja, þá er það víst, að p er

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.