Menntamál - 01.12.1936, Qupperneq 43
MENNTAMÁL
201
Þessum mönnum og öllum öðrum, er að því liafa
unnið, að lileypa þessu mikla velferðarmáli harnanna
og skólanna af stokkunum, kunna Menntamál beztu
þakkir.
Það er alkunnugt, að samvinnufélög hænda liafa þeg-
ar víðsvegar um land unnið mikilsvert starf fyrir menn-
ingu sveitanna. Kaupfélag Eyfirðinga er þar vafalaust
fremst í flokki. Starfsemi menningarsjóðs, sem lýst er
liér að framan, er aðeins litið brot þeirrar margþættu
framfarabaráttu, er liáð hefir verið undir merkjum
þess. En með gjöfinni til lieimavistarbarnaskóla liefir
Kaupfélag Eyfirðinga, og væntanlega samvinnuhreyfing-
in í landinu, gengið inn á nýja braut, sem áreiðanlega
getur orðið samvinnunni og alþýðumenningu sveitanna
til ómetanlegs gagns. Með hinni rausnarlegu gjöf liefir
K.E.A. viðurkennt betur en gjört liefir verið áður skyld-
ur hinna þroskuðu við yngstu kynslóðina. Vonandi verð-
ur þetta ágæta fordæmi til verðugrar eftirbreytni víðs-
vegar um landið.
Menntamál senda K.E.A. og forystumönnum þess hug-
heilustu árðnaðaróskir, um að gjöfin til barnaskólanna
megi verða til hinnar mestu giftu fyrir Eyjafjörð um
ókomnar aldir.
S. Th.
Dr. Símon Jóhannes Ágústsson.
Svo sem getið var um í síðasta hefti Menntamála, hefir dr.
Símon Jóh. Ágústsson notið Hannesar Árnasonar styrksins um
undanfarin ár. Flytur hann nú fyrirlestra hér við háskólann,
svo sem reglur um sjóð H. Á. mæla fyrir. Hefir aðsókn að
fyrstu fyrirlestrum hans verið meiri en dæmi eru til um langt
skeið við háskólann. Áheyrendur hafa gert hinn bezta róm að
máli dr. Símonar. Fyrirlestrarnir fjalla um uppeldi og uppeldis-
fræði. Dr. Símon hefir heitið að rita itarlega grein i næsta hefti
Menntamála.