Menntamál - 01.12.1936, Síða 64
222
menntamál
efni, og gera mætti sér vonir um að garðyrkjustörfin
yrðu til þess, að festa huga barnsins við þau störf, sem
því ber að meta, og undir flestum kringumstæðum að
starfa að á fullorðins árum. Nauðsynlegt er, að sam-
band námsgreinanna sé sem mest, t. d. handavinnu,
reiknings og náttúrufræði. Kemur þar til greina kennslu-
tækjasmíði í sambandi við eðlisfræði, útreikningur og
ýmiskonar mælingar. Þá verður vinna i gróðrarstofu
að vera nátengd grasafræðinámi. Nemendur vinni að
undirbúningi jarðvegs í gróðrarstofunni og sáningu ým-
issa nytjaplantna og birðingu þeirra. Skólinn hefir eftir-
lit með heimagarðyrkju nemenda, kennarinn heimsæk-
ir nemendur að minnsta kosti einu sinni yfir sumarið,
þegar bezt lientar, til að líta eftir garðyrkjustörfum
þeirra. Nemendur gera skýrslu um garðyrkjuna og
sunduliðaðan reikning yfir gjöld og tekjur hennar.
Heimavistarskólarnir eru sjálfkjörnar miðstöðvar
hverskonar samtaka og félagsstarfa, hver i sínu hér-
aði. Vitanlega yrðu aðstæðurnar til þess mismunandi
í hverjum skóla, eftir húsakynnum, ytri staðháttum
o. s. frv. Smá námskeið fyrir fullorðna fólkið og félags-
samtök um ýms efni, s. s. skólamálin, eru vel fallin
til að sameina alla hugsandi menn um uppeldis- og
fræðslumál, bæði í skólum, heimilum og í félagsstörf-
um. Skólarnir mega ekki láta sitja við orðin tóm; þeir
verða að vinna að lilutverki sínu, ekki aðeins innan
veggja skólans, heldur einnig á heimilunum og i störf-
um og skemmtunum fólksins. Góður skóli á allsstaðar
siðferðilegan rétt til íhlutunar, bæði beint og óbeint.
Þess ber vel að gæta, að í fræðslu- og uppeldisstarfi
skóla hefir það ekki mesta þýðingu, hvað miklu barnið
getur skilað og hlaðið á minnið af tilreiddum fróð-
leik, heldur hitt, hversu leikið það er í að afla sér sjálft
þekkingar með þeim tækjum og eftir þeim heimild-
um, sem til staðar eru, og á þann hátt aflað sér reynslu,