Menntamál - 01.12.1936, Page 75
MENNTAMÁL
233
Aukin samvinna milli kennara og stjórnarvaldanna.
Hækkun skólaskyldualdurs þegar í stað til 14 ára aldurs. (Nú
er hann til 13 ára, en mikill hluti barna heldur áfram námi til
15 ára og jafnvél 1G ára aldurs).
Bygging nýrra skólahúsa.
(Fregn frá Syndicat des Instituteurs).
ÞÝZKALAND.
Síðan 1933 er eitt allsherjar kennarafélag í Þýzkalandi,
National-sozialistischer Lehrerbund. Kennarar við alla skóla eru
sameinaðir í þetta félag. Hinn 22. april 1936 tilkynnti stjórnin,
að allar eignir gömlu kennarafélaganna, sem sameinuð voru í
allsherjar samband (Deutscher Lehrerverein), skyldu ganga til
hins nýja félags..
Byrjunarlaun kennara í Þýzkalandi eru 2800 mörk. Hæstu laun,
5000 mörk, fást eftir 20 ára þjónustu. Kennslukonur fá 10% lægra
kaup. Kennarar fá nú kennslu í stjórnmálum. Kennslan fer fram
á námskeiðum.
(National-Sozialistische Lehrerzeitung No. 22, 30. maí ’36).
Fréttir teknar eftir I. P. I. (Internationale Paedagogische In-
formation) okt. 1936:
FRAKKLAND.
Kennslumálaráðherra Frakklands, Jean Zay, hefir skipað svo
fyrir, að skipta skuli öllum bekkjum í frönskum skólum, þar sem
nemendur eru fleiri en 35. Vegna þessarar tilskipunar þurfti að
bæta við 2800 nýjum kennurum við barnaskólana, en 1085 við
unglingaskóla. í byrjun þessa skólaárs sóttu 278.612 erlendir nem-
endur franska skóla.
SVISS.
Borgin Zúrich hefir 251.000 íbúa og 135 barnagarða. í fylk-
inu Zúrich eru 173 barnagarðar með 8500 börnum.
í TSCHECHOSLOVAKIU,
með 15 milljónir íbúa alls, eru 15.237 barnaskólar, með 44.931
bekk og 1.780.135 nemendum. Að meðaltali eru 37 nemendur í
bekk.
PORTÚGAL.
I Portúgal eru svo fáir kennarar, að víða eru 80 nemendur
á kennara. Á mörgum stöðum eru alls engir kennarar, og lærir
því hin skólaskylda æska þar hvorki að lesa né skrifa.
JUGOSLAVIA.
Laun kennara við ríkisskóla hafa verið lækkuð um 7%.