Menntamál - 01.12.1936, Síða 79
menntamAl
237
greinar eftir ýmsa merka höfunda, innlenda og erlenda. Myndir,
kvæði og margvislegar frétti eru einnig i ritinu. Er það hið
eigulegasta.
Skinfaxi. Tímarit UJM.F.L, okt. 1936. — Skinfaxi flytur að
vanda margar athyglisverðar greinar um uppeldis- og æskulýðs-
mál. Má t. d. benda á hina nýju og merku stefnuskrá U.M.F.Í.,
ásamt greinargerð Sambandsstjórans, A. Sigm., o. m. fl.
Mamma litla II. — Úrval úr heimsbókmenntum barna og ung-
linga. Útg. Þorst. M. Jónsson. Þýð. Jóhannes úr Kötlum og Sig-
urður Thorlacius. Fyrra bindið kom út í fyrra. Hið síðara í
sept. síðastl. Bókin hefir hlotið góða dóma i blöðum hér, enda
er hún á frummálinu talin ein allra bezta barnabók Frakka.
Bygging lieimavistarskóla.
Mikill og vaxandi áhugi fyrir málinu víðsvegar um landið.
Hvaðanæfa af landinu berast fregnir um ráðagerðir og ýmis-
konar undirbúning að byggingu heimavistarskóla fyrir dreifbýli
sveitanna. Eru fregnir þessar talandi vottur um hinn almenna
og vaknandi áhuga fyrir því stærsta menningarmáli sveitanna,
er nú bíður úrlausnar. Hér skulu nefnd dæmi:
í ViIIingaholtshreppi i Árnessýslu er 5 manna nefnd starfandi
til undirbúnings skólahússbyggingu. Samþykkt hefir verið, af
bændum og öðrum vinnufærum mönnum í sveitinni, að leggja
fram rúmlega 1000 dagsverk ókeypis til byggingarinnar. Helzt
er ráðgert, að skólinn verði reistur við 37° heita laug, nálægt
miðri sveit. Hreppsbúar undirbúa nú lántöku. Ennfremur hafa
þeir sótt um styrk úr ríkissjóði.
í Gaulverjabæjarhreppi, í sömu sýslu, er skólamálið álíka langt
á veg komið.
(Samkv. viðtali við Jón Konráðsson, kennara).
í Þykkvabæ á Rangárvöllum er skólahús í smíðum. Þar verður
heimanganga og lítil heimavist.
Landmannahreppur. Hreppsbúar ráðgera að byggja heimavist-
arskóla á næsta ári.
Auk þeirra sveita, sem nú voru taldar, er kunnugt um a. m. k.
20 staði i sVeit, þar sem skólabyggingar eru i undirbúningi. Verð-
ur ýmsra þeirra nánar getið í næsta hefti.
(Heimild: Skrifstofa fræðslumálastjóra).