Menntamál - 01.12.1942, Page 42

Menntamál - 01.12.1942, Page 42
104 MENNTAMÁL arvillur aukast. — Ég treysti á það, að bezta vörn og sókn sé lestur góðra bóka, sérstaklega fornsagna, og auknar tal- æfingar í skólum og endursagnir og lestur úr fögrum ritum. En ég vil þó að síðustu minna á söguna um stúlkurnar í Nyboderskólanum. — Fyrsta undirstaða móðurmáls- kennslunnar er lögð á heimili barnsins, fyrst og fremst af móðurinni og því næst af öðrum heimilismönnum. Það verður þvi aldrei nógsamlega brýnt fyrir þeim, sem umgangast börn, að vanda málfar sitt. — Því læra börnin málið, að það er fyrir þeim haft. — Þessi sannindi mega engum gleymast, sem umgengst börn. Pdll Porsteinssoii: Ungmennafélögin og uppeldið Manngildi hvers manns mótast af tveim höfuðþáttum: eðli hans og uppeldinu. Allir vita, hvernig gróðurinn í ríki náttúrunnar mótast af þeim skilyrðum, sem fyrir eru á hverjum stað, og þeirri aðhlynningu, er hann hlýtur. Því er eins farið meðal mannanna. Bernsku- og æsku- árin eru vortíminn í æfi mannsins. Þá er vöxturinn örastur, en í upphafi óráðið, hver vaxtarstefnan verður. Uppeldiö í bernsku og æsku hefir svo rík áhrif, að á því veltur mjög um skapgerð manns, gervileik og giftu. Iðjuleysi lamar áhuga og elju og leiðir oft af sér óreglu. Hófleg áreynsla stælir þróttinn og eflir atorku og útsjón. Góður félags- skapur örvar menn til átaka, gerir þá glaöværa, bjartsýna, frjálslynda, framsækna. Heimilin hafa lengst af verið meginstöðvar uppeldisins

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.