Menntamál - 01.12.1942, Síða 48
110
MENNTAMÁL
Námsstjórar
hóíu staif sitt á þecsu hausti eins og s. 1. ár. Snorri Sigfússon stundar
eftirlit'ð á Norðurlandi, Stefán Jónsson á Austurlandi, Bjarni M.
Jónsson á Suðurlandi, en' í stað Aðalsteins Eiríkssonar kom Aðalsteinn
Sigmundsson sem námsstjóri á Vesturlandi. Aðalsteinn Eiríksson 1
Reykjanesi gat ekki sinnt námsstjórastarfi áfram sökum bygginga-
framkvæmda og annarra anna við skólann í Reykjanesi.
Skólar í Reykjavík
hófust nú fyrr en tvö undanfarin haust. Haustskólar fyrir yngri
börn hófust fyrir miðjan september, en síðastliðin ár hefur september-
skólinn fallið niður af hernaðarorsökum.
Steingrímur Arason,
kennari við kennaraskólann dvelur nú i Vesturheimi. Hefur hann
samið unglingabók, sem geiist á íslandi og fengið hana gefna út hjá
þekktu forlagi i Bandaríkjunum.
Tveir kennarar á Alþingi.
Við alþingiskcsningarnar í haust voru tveir kennarar kjörnir til setu
á Alþingi: Páll Þorsteinsson fyrir Framsóknarflokkinn i Austur-
Skaftafellssýslu og Lúðvík Jósepsson fyrir Sósíalistaflokkinn, land-
landkjörinn í Suður-Múlasýslu.
Kennaranámskeið á Akureyri.
Kennaranámskeið var haldið á Akureyri í byrjun október í haust.
Björn Guöfinnssan lektor kenndi íslenzku og Þorsteinn Einarsson
íþróttafulltrúi kenndi íþróttir. Námsskeiðið sóttu 61 norðlenzkir
kennarar.
Til athugunar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið skrifaði biskupi íslands þ. 27. nóv.
1942 á þessa leið:
„Að gefnu tilefni frá fræðslumálastjóra vill þetta íáðuneyti hér með
taka fram, að það telur rétt að börn verði ekki fermd fyrr en þau hafa