Menntamál - 01.06.1950, Blaðsíða 50
112
MENNTAMÁL
að fá börnunum blöð, t. d. gömul dagblöð eða vikublöð og
láta þau strika undir þá stafi, orð eða setningar, sem þau
gátu lesið hjálparlaust. Einu áhaldinu hafði ég kynnzt hér
heima og notað talsvert með ágætum árangri, en það var
stafaveskið. Aðrir kennarar létu börnin búa sér til eins
konar vinnubækur, sem voru gerðar þannig, að barnið
klippti úr blöðum, bókum eða tímaritum stafi, orð eða
stuttar sögur eða frásagnir. Þegar barnið hafði farið
yfir þetta í áheyrn kennarans og fengið það staðfest af
kennara, að það kynni þetta, fékk það að líma það inn í
vinnubók sína. En þetta voru aðeins heimaverkefni.
Margt mætti fleira tilnefna, en slíkt hefur litla þýðingu
og lýsingar einar án sýnishorna eru oftast gagnslitlar.
HEIMILDIR:
Anton Nielsen: Den förste lœseundervisning.
Mogens Kyng: Læsningens psykologi.
Carl Aage Larsen: Læsevanskeligheder hos börn.
Misminni
var það, sem sagt var i minningargreininni um Sigurð Guðmundsson
skólameistara í næst síðasta liefti Menntamála, að það hafi verið móðir
hans, sem Lárus Rist gisti á leið sinni noröur í land á bernskudögum sín-
um. Það var föðurmóðir Sigurðar. Leiðréttist það hér. Á. H,