Menntamál - 01.06.1950, Page 45
MENNTAMÁL
107
vel eykst. Mistakist tilraunin hins vegar, hverfur áhuginn
eða veldur leiða. En það er engin sönnun þess, að það sé
áhuginn, sem skapar hinn góða árangur, þvert á móti virð-
ist sem áhuginn sé árangur þess að starfið hafi heppnazt."
Áhuginn er því mjög háður því, hvort starfið heppnast
eða ekki. En það heppnast því aðeins, að það sé ekki nem-
andanum ofviða. Heppnist starfið, eykst áhuginn og viljinn
til áreynslu. Fái nemandinn hins vegar verkefni, sem hon-
um er of erfitt eða of létt, fá hæfileikarnir hvorki þá æf-
ingu né þroska, sem þeir þarfnast, sem er þó markmið
kennslunnar. Nú hlýtur sú spurning að vakna, hvort lestr-
argeta barnanna sé svo jöfn, að við getum með góðri sam-
vizku látið þau fylgjast að eða ekki. í þessu efni má kennar-
inn ekki eingöngu treysta á tilfinningar sínar og lauslegt
mat. Við verðum að nota viðurkennt mál, sem mælir ná-
kvæmlega getu barnsins, það er a. s. að prófa það. Prófin
eiga að vera kennaranum leiðarvísir og ábending um það,
sem ábótavant er, þá getur hann fengið tækifæri til þess
að bæta úr því, sem hann finnur ábótavant í lestri nem-
andans. Þetta er að vísu mun auðveldara fyrir t. d. flestar
aðrar þjóðir en okkur, því að þær eiga miklu fullkomnari
,,standardiseruð“ próf til þessara hluta en við, auk þess
sem þær eiga á að skipa fjölmörgum skrifstofum með sæg
skólasálfræðinga sem vinna úr prófunum, jafnóðum og þau
berast. Börn hafa gaman af prófum og hlakka til þeirra.
Eflaust er ástæðan sú, að þau sjá þá svart á hvítu, hvar
þau eru stödd, borið saman við næsta skipti áður. Að jafn-
aði hefur barnið ekkert að miða getu sína við annað en
félaga sína. Þetta er mjög lamandi fyrir lélega lesara, því
að þeir hafa sjaldnast neinn möguleika til þess að keppa
við þá, sem miklu betri eru. Þetta staðfestir aðeins getu-
leysi þeirra og flýtir fyrir uppgjöf. En það er einnig lam-
andi fyrir góðu lesendurna, því að þeir fá miklu síður tæki-
færi til þess að leggja sig alla fram. Án þess nær enginn
nemandi hámarki í getu. Við prófin gefst barninu kostur