Menntamál - 01.06.1950, Blaðsíða 54
116
MENNTAMÁL
um, og að innkaupum loknum var vörunum skilað
í bankann ásamt því, sem eftir var af peningum.
5. ) Þarna var líka kvikmyndahús. Sýningartjaldið var
langur pappírsstrangi, og á hann var letruð mynd-
skreytt saga. Þessi aðferð var fundin upp af börn-
unum sjálfum, og var útbúnaður allur gerður af
mestu hugkvæmni. Hverri mynd fylgdi texti í réttri
röð.
6. ) Brúðuleikhús voru víða, og þau voru mikið notuð.
7. ) Nokkur börn bjuggu til traf,
8. ) önnur kartöfluprent á pappír.
Flest var gert úr gömlu, og margt af því komu börnin
með að heiman.
í heimsóknum mínum í ýmsa skóla varð ég annað veifið
vör við sams konar vinnubrögð, en hvergi að svo furðulegu
magni né margbreytni til jafns við það, sem ég sá þarna.
—- 1947 kom út bók Activity in primary school eftir
M. M. Daniel. Þar er greint frá tilraunum í skólastarfi,
sem fram fara víða um England. Dæmi um hér um bil
allt það, sem þar er lýst, sá ég í þessum skóla.
Öskiljanlegt er það, hvernig kennarar fá ráðið við það
verkefni að hafa 50 börn í bekk, en þetta á sér víða stað.
Þennan skóla heimsótti sægur kennara frá öðrum skólum.
Urðu kennarar þar að bæta því ofan á sitt starf að sinna
slíkum heimsóknum.
Klukkan 11 var gengið frá mestöllu dótinu, og börn-
in fengu stundahlé. Sumt var þó tekið fram síðar um dag-
inn. Stundaskrá fyrir allan skólann hékk þar á vegg.
Skrýtið þótti manni að sjá, að námsgreinarnar: saga,
landafræði og náttúrufræði voru hvergi nefndar þar. Aft-
ur á móti var þar talið fjölmargt, sem við þekkjum ekki
í skólum okkar t. d. málfundir, sjónleikir og ,,activities“.
Til iðkunar í réttritun og reikningi var báðum greinum
saman ætluð ein stund á dag. Músík og leikfimi voru á sér-