Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 12
6
MENNTAMÁL
Skólaskylda.
Skólaskylda er frá því um 6 ára aldur til 15 eða 16 ára.
Sums staðar t. d. í Seattleborg í Washington-ríki eru
unglingar skólaskyldir til 18 ára aldurs, ef þeir eru at-
vinnulausir. Námsbraut allt upp að háskólanámi er skipt
í 12 bekki. Eru 6 þeir fyrstu barnaskólastig.
Frjálsmannleg vinnubrögð.
Kennsluaðferðir einkennast allmjög af frjálsri vinnu
nema. Kennslugögn og náms- og heimildabækur eru þann-
ig gerð, að fljótlegt og auðvelt er fyrir kennara að leggja
efni fyrir námsmanninn. Lágmarksyfirferð er ákveðin
eftir atvikum. Kennari vakir yfir, að starfið beinist í rétta
átt. Nemendur verða sífellt að gera grein fyrir árangri og
niðurstöðum. Þeir eru snemma vandir á að segja frá
kunnu efni í heyranda hljóði bekkjar. Eru þá valdir frum-
mælendur, sem verða að standa fyrir máli sínu gagnvart
hinum. Umræður eru oft fjörugar. Nemendur virðast
ófeimnir að láta gamminn geysa. Þeir hafa fengið leið-
beiningu um ræðumennsku. Eykur það dirfsku og öryggi
að standa upp, ef meðvitund um, að rétt sé að farið, stend-
ur á bak við. Annað kastið spyr kennarinn bekkinn og
yfirheyrir. Fer yfir skriflegar úrlausnir og metur þær.
Skyndipróf eru algeng. Vinnublöðum er haldið til haga.
Nemendur, ungir sem gamlir, í allri álfunni hafa sams
konar vinnubók. Er það leðurmappa með lausblaðabókar-
kili. Má loka henni með rennilás. Verður hún þá gott
geymsluílát. í hana festir nemandi vinnublöð úr öllum
námsgreinum.
Stafsetningarkennsla.
Margt er staglsamt í skólum þar eins og hér. Ensk staf-
setning er ekki auðveldari en íslenzk. Er þar um að ræða
orðalista, stíla, reglur, undantekningar, utanaðlærdóm,