Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 104
98
MENNTAMÁL
um svo, að þeir gefast upp við dæmareikninginn, glata trausti á sjálfa
sig og fá óbeit á námsgreininni. MeJzUi ráðin til þess að bægja þessari
hættu frá eru að liafa ævinlega nógu mikið af hæfilega léttum við-
fangsefnum á takteinum, og í öðru lagi að sýna með dæmum, hvernig
leyst cr úr örðugri viðfangsefnum. Sú sýnikennsla er notuð í vax-
andi mæli og gefur góða raun, því að nemendur langar til að spreyta
sig á flóknum viðfangsefnum, og hafa gaman af því, ef þeir finna,
að þeir ráða við þau.
Þessa leið hefur Lárus Bjarnason valið í nýjustu bók sinni, Dœma-
safn með úrlausnum handa framhaldsskólanemendum. Bók hans hefur
að geyma 78 dæmi alls úr almennum reikningi, algebru og geometríu.
Hverju dæmi fylgir úrlausn og við sum er fleiri en ein aðferð sýnd.
Þótt dæmin séu ekki fleiri en þetta, eru þarna fulltrúar flestra
þeiira dæmategunda, sem framhaldsskólanemendum gengur örðug-
ast að glíma við.
Bókin hefst á stuttum inngangi um talnakerfið, en síðan koma 54
dæmi með úrlausnum. Dæmi þessi eru af ýmsu tagi, meðal annars
gömul prófdæmi, en flest snotur og eftirminnileg. Úrlausnirnar
eru nægilega ýtarlegar til þess að hverjum framhaldsskólanemanda
ætti að vera vorkunnarlaust að átta sig á þeim.
Þá kemur sá kafli bókarinnar, sem ég gæti trúað, að ýmsum þætti
mestur fengur í, ekki sízt gömlum nemendum Lárusar: Tíu dæmi með
handrituðum úrlausnum Lárusar ljósprentuðum. Lárus er snilldar-
skrifari, og enn eru ekki meiri ellimörk á rithönd hans en svo, að við
erum margir yngri mennirnir, sem megum stórlega öfunda hann af
skriftinni. Þessar úrlausnir eru nemendum ágæt fyrirmynd um fram-
setningu, frágang og skrift, en á þeim þremur sviðum vilja ærið oft
verða misbrestir.
Bókinni lýkur svo á tveim verkefnum í stærðfræði frá síðustu lands-
prófum, fjórtán dæmum alls, með svörum og úrlausnum prófdómar-
ans Steinþórs Guðmundssonar, en hann hefur samið þessi dæmi.
Þessi síðasta bók Lárusar er nýjung í kennslubókakosti okkar ís-
lendinga, þörf nýjung sem vænta má að bæði kcnnarar og nem-
endur framhaldsskóla taki fegins hendi og liagnýti við kennslu og
nám. Þá á hún áreiðanlega eftir að glæða mörgum nemanda áhuga á
stærðfræði og skapa honum ánægjustundir í glímu við hæfileg verk-
efni, en þau laun verða höfundi hennar áreiðanlega kærust launa.
Lárus Bjarnason varð áttræður 1. marz s. 1. Menntamál færa þess-
um merka kennara lieillaóskir og þakkir fyrir drengskap og dug í starfi.