Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 114
108
MBNNTAMÁL
hún falið Dr. Orville G. Brimm frá félagsfræðideild Wisconsin-
háskóla að rannsaka sambandið milli félagsfræði og menntunar
foreldra. Meðal annars mun hann stjórna rannsóknum, sem félags-
fræðideild New Yorkháskóla mun gera á menntun foreldra.
Aðsókn að menntaskólum (colléges universitaires). — Hin árlega
skýrsla Carnegie-stofnunarinnar vekur athygli á vandamálum sam-
fara sívaxandi aðsókn að menntaskólum. Núna sækja um 30%
pilta og stúlkna á 18 ára aldri menntaskóla á móti 18% árið 1940
og 12% árið 1930.
Fjórum sinnum fleiri doktorsritgerðir en fyrir tiu árum. — Sam-
kvæmt ritinu Doctoral Dissertations accepted by American Univer-
sities var fjöldi doktorsritgerða í Bandaríkjunum árið 1953 8604. Fyrir
tíu árum nam hann aðeins 2117. Af 199 háskólum krefjast 43, að
ritgerðirnar séu prentaðar og 41 taka við þeim á smáfilmum (micro-
films).
Kostnaður við myndablöð handa börnum. — Samkvæmt skýrslu út-
gefinni af Kalíforníuháskóla eru myndablöð (comic books) seld í
billjón eintökum á ári í Bandaríkjunum. Til kaupanna er varið
fjórum sinnum meira fé en öll bókasöfn landsins hljóta, einnig er
upphæðin hærri en sú, sem varið er til kennslubóka í öllum barna- og
gagnfræðaskólum Bandaríkjanna (écoles primaires et secondaires).
ENGLAND.
Iðnskóli fyrir heyrnarlausa pilta. — Nýr heimavistarskóli nálægt
Walton-on-Thames tók til starfa í september 1955. Stofnun þessi
sem er hin fyrsta sinnar tegundar i Englandi, tekur á móti 30 pilt-
um 11 ára og eldri, sem eru mjög heyrnardaufir. Enda þótt þetta sé
einkastofnun, hefur hún hlotið viðurkenningu menntamálaráðu-
neytisins. Nemendur verða að hafa hlotið vissa menntun og geta
tjáð sig munnlega til að verða teknir í skólann. Vonazt er til, að
nemendur verði eftir nokkurra ára dvöl í skóla þessum hæfir til náms
í venjulegum iðnskóla eða listaskóla.
Heimsóknir á málverka- og listasöfn. — Menntamálaráðherra hef-
ur farið þess á leit við stjórnir afskekktra liéraða, að þær veiti nem-
endum í listaskólum fjárstyrk, svo að þeim gefist kostur á að skoða
listaverk á listasöfnum stórborganna. Ennfremur hefur hann ráðlagt
þeim að kaupa listmuni, svo að hver skóli geti eignazt sitt smásafn.
Safn helgað bernskunni. — Edinborgarfélagið hefur nýlega opnað
smásafn, sem er eingöngu helgað bernskunni. Ætlunin er, að þangað
safnist og þar verði geymdir allir hlutir viðkomandi barninu, svo
sem leikföng alls konar, brúður, bækur og svo framvegis.