Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 100
94
MENNTAMÁL
Það væri sannarlega ánægjulegt, ef sú stefna yrði upp tekin við
samningu námsbóka, að þeim fylgdu litprentaðar myndir.
Nokkrar nýjar myndir hafa bætzt í bókina, og eru þær gerðar af
Þórdísi Tryggvadóttur.
Eitt er það þó, sem mjög stingur í stúf við hið fagra innra útlit
bókarinnar, ef svo má segja, en það er kápan á henni. Það hlýtur að
iara að líða að því, að þessar steindauðu, næstum hrollvekjandi kápur
námsbókanna verði lagðar niður og þær klæddar á skemmtilegri hátt.
Þetta ætti að hafa lærzt fyrir nokkru, og vonandi stendur það til
bóta.
Aftast í bókinni er yfirlit um ný orð, sem bætast við í hverjum kafla,
og er það til mikils hægðarauka fyrir kennara, er þeir búa sig undir
kennslu.
Það er meiri vinna en margur gerir sér grein fyrir að semja
kennslubækur sem þessa. Það þarf að gæta mikillar nákvæmni og oft
örðugleikum bundið að velja texta, sem ná tilgangi sínum.
Eg hygg, að höfundar þessarar bókar hafi að miklu leyti byggt á
þeirri reynslu, sem fengizt hefur við lestrarkennslu í skóla ísaks
Jónssonar, og er það vel farið, að kennslubækur séu grundvallaðar á
þeirri reynslu, sem fengizt hefur við íslenzka skóla, en ekki eingöngu
sótt til erlendra fyrirmynda.
Við bíðum eftir nýrri útgáfu af síðara hefti.
Kári Arnórsson.
JÓN ÞÓRÐARSON:
Valdimar Össurarson: Stafakver. Vinnubók í stöfun. I. hefti. Bóka-
úlgáfan Valur.
Enda þótt kver þetta sé komið út fyrir nteira en ári, lief ég hvergi
séð á það minnzt í blöðum eða tímaritum. Tel ég það illa farið, ef
það verður þögn og gleymsku að bráð, þar sem ég veit, að það hefitr
komið að góðu gagni og orðið vinsælt, þar sem það hefur verið reynt.
— Þetta eru 16 spjöld — 32 síður — og á hverri síðu stafir og liag-
lega gerð mynd ásamt nafni hennar. Myndirnar eru eftir Halldór
Pétursson, listmálara. Spjöldum þessum fylgir svo vinnubók heft í
kápu, fyrir nemandann að teikna og rita í. — Mjög er það algengt,
þegar börn byrja lestrarnám 6—7 ára, að yngri systkini 4—5 ára fyllist
allt í einu miklum áhuga fyrir því að fara sjálf að fást við eitthvað
slíkt. Oft lenda þá foreldrar í vanda, þegar velja skal heppilegt við-
fangsefni fyrir þessi börn.
í rauninni er hér ekki um neitt að velja, því að þess hefur ekki