Menntamál - 01.04.1956, Side 17
MENNTAMÁL
11
og agabrot, framkomu nemenda og jafnvel kennara, fyr-
irkomulag og skipun flestra hluta viðkomandi skóla sín-
um. Sat ég slíka fundi í nokkrum skólum. Umræður fóru
hátíðlega fram undir stjórn forseta. Skólastjóri eða ein-
hver í hans stað er ætíð viðstaddur. Nemendaráð er mikils
metið í skólum Bandaríkja og er talið til gagns og þrifa.
— Umferðalögregla er valin úr hópi nemenda. Hún stend-
ur vörð við götur og gatnamót í umhverfi skóla, á meðan
skólafólk fer til og frá, og hefur sama rétt í stjórn um-
ferða og götulögregla. Þessi háttur var fyrst tekinn upp
fyrir mörgum árum í St. Paul, höfuðborg Minnesotaríkis.
Breiddist þaðan fyrst út til Minneapólis og því næst smám
saman yfir alla Ameríku, var sagt. Þykir þetta sjálfsagð-
ur hlutur við alla skóla.
Blaðsöludagur skóla gefur nemendum ærinn starfa.
Er hann 4—5 sinnum á ári. Er hann þannig til kominn,
að nemendur safna öllum dagblöðum og úrgangspappír á
heimilum sínum og gefa skóla. Þegar söludagur er ákveð-
inn, kemur hver nemandi rogandi með sinn blaðastranga.
Eitthvert fyrirtæki, sem vill kaupa slíka vöru, hefur sent
vörubíl, er bíður framan við skólann. Nefnd nema veitir
varningi móttöku, vegur hann, færir á nafn gefanda og
sér um fermingu bílsins. Að lokum fylgir nefndin honum
eftir á ákvörðunarstað og innheimtir andvirðið, sem
rennur til skólans á þann hátt, að nemendur og skólastjóri
ákveða, hvernig verja skuli. Er það oftast til að kaupa
eitthvert kennslutæki. Ég var viðstaddur blaðadag í skóla
í Minneapolis. Þá komu inn fyrir blöðin rúmir 99 dalir.
Þeir áttu að renna fyrir sýningarvél.
Af dæmi þesu má sjá, að hin auðuga Ameríka leggur
sig niður við að hirða smámuni. Það er vitnisburður, þótt
í smáu sé, um fjármálamenningu þá, sem hvarvetna blas-
ir við augum þar í sveit, að hagnýta alla skapaða hluti.
Félagsstörfin gefa gott tilefni til þjálfunar í mannasið-
um og umgengnisvenjum. Nota kennarar það til að gefa