Menntamál - 01.04.1956, Page 34
28
MENNTAMÁL
stofnunar er Danmarks pædagogiske institut. Og mun
hún starfa í 5 deildum:1)
1. Deild fyrir kennslufræðilegar rannsóknir.
2. Deild fyrir uppeldis- og sálfræðilegar rannsóknir.
3. Deild fyrir gáfnapróf (tests) og ýmis konar hæfnis-
próf.
4. Deild fyrir uppeldisfræðilega tilraunastarfsemi.
5. Deild fyrir skýrslugerð og yfirlit (statistik).
Forstöðumaður stofnunarinnar er mag. art. Erik Thom-
sen, sem áður var forstöðumaður skólasálfræðiþjónustu
Kaupmannahafnarborgar.
Það er álit danskra skólamanna, að með stofnun þess-
arar rannsóknarstofu sé mikilvægum áfanga náð í
þróun þessara mála í Danmörku, og vænta þeir sér mikils
af starfsemi hennar í þágu uppeldis- og fræðslumála í
framtíðinni.
Finnland.
1 maímánuði 1955 voru 100 ár liðin, síðan Lars Sten-
báck, fyrsti háskólakennarinn í uppeldisvísindum, hóf
starf sitt við finnskan háskóla. Uppeldisfræði hefur
þannig óslitið verið sjálfstæð námsgrein við háskóla í
Finnlandi í meira en 100 ár, þó lengi vel tengd guðfræði-
deildum. Sálfræðin er aftur á móti ný sem sjálfstæð
námsgrein í Finnlandi. Fyrsti háskólakennarinn í þeirri
grein var settur í embætti árið 1951. Þróun þessara mála
hefur þannig verið með öðrum hætti, en annars staðar á
Norðurlöndum.
Fræðimennirnir, prófessor Matti Koskenniemi og
dócent Gösta Cavonius, skýra frá ýmsum merkum viðfangs-
efnum og rannsóknum finnskra vísindamanna á sviði upp-
eldismála í yfirlitsgrein í „Skola ock samhálle“. Á síðustu
1) Sbr. Menntamál 1955, bls. 171 og áír.