Menntamál - 01.04.1956, Side 41
menntamál
35
síðan atkvæði, orð og setningar. I Svíþjóð hafa sem sagt
mjög fáir notað orðmyndaraðferðina við lestrarkennsl-
una, og vísindalega hafa kostir og lestir þessarar aðferð-
ar lítið sem ekkert verið rannsakaðir þar. — Vorið
1953 voru gerðar ýmsar athuganir á femum tvíburum,
og í nóvember sama ár voru svo stofnaðir tveir tvíbura-
bekkir í Stokkhólmi. Hvor bekkjanna var með 9 nemend-
ur, algera byrjendur. Sami kennari kenndi lestur í
báðum bekkjunum. í öðrum bekknum kenndi hann lest-
ur með hljóðaðferðinni, en í hinni með orðmyndaraðferð-
inni. Lestrarkennslunni var þannig hagað allt skólaárið
1954—55. Ætlunin er að fylgjast lengur með námi og
þroska þessara barna, en eftir þriðja skólaárið verða þessir
bekkir leystir upp.
Með rannsókn þessari er fyrst og fremst leitazt við að
fá svör við eftirfarandi spurningum:
1. Hvor aðferðin gefur meiri lestrarleikni?
2. Með hvorri aðferðinni öðlast nemandinn betri skiln-
ing á því, sem hann les?
3. Hvernig orkar aðferðin á áhuga nemendanna á lestr-
arnámi?
4. Hvernig orkar aðferðin á réttritun?
Ýmiss konar athuganir og rannsóknir hafa verið gerðar
á nemendum þessara tvíburadeilda, bæði uppeldisfræði-
legar og kennslufræðilegar. Unnið verður úr þessum rann-
sóknum, og áður en langt um líður verður birt yfirlit yfir
niðurstöðurnar. Líklegt má telja, að margt fróðlegt
komi hér í ljós og rannsókn þessi geti orðið athyglisverð-
ur samanburður á þessum tveimur aðferðum við lestrar-
kennslu.
Skriftarnámið hefur einnig verið tekið til athugunar frá
kennslufræðilegu sjónarmiði. Rannsókn þessi er ennþá
skammt á veg komin. En í ljós hefur komið, að árangurinn
er ekki aðeins undir dugnaði og árvekni kennarans kom-
inn, heldur skiptir það miklu, hvaða aðferðir og fyrir-