Menntamál - 01.04.1956, Blaðsíða 42
36
MENNTAMÁL
myndir eru notaðar við kennsluna. — Mjög athyglisverðar
rannsóknir á skólaþroskaprófum hafa einnig verið gerðar
á vegum þessarar rannsóknarstofnunar.
Þar til í ársbyrjun 1953 var sálfræði- og uppeldisfræði-
námið við háskólann í Stokkhólmi tengt hvort öðru, en
frá byrjun fyrra háskólamisserisins 1953 eru þetta tvær
sjálfstæðar greinar við háskólann. 0g síðan starfa einnig
tvær rannsóknarstofur — auk þeirrar, sem áður er nefnd,
— í tengslum við háskólann, önnur sálfræðileg, en hin
uppeldisfræðileg.
Torsten Husén, prófessor í uppeldisfræði við Stokk-
hólmsháskóla, hefur — eins og fyrr er vikið að — stjórn-
að undirbúningi og gerð nýrra staðlaðra prófa fyrir U. og
6. bekk barnastigsins, en það verkefni var unnið í nánu
samstarfi við yfirstjórn sænskra skólamála (Skolöver-
styrelsen) og yfirstjórn skólamálanna í Stokkhólmi. En
hér var um mjög yfirgripsmikið verkefni að ræða, sem
skólastarfinu getur orðið mikill styrkur að í framtíðinni.
Próf þessi geta t. d. gefið athyglisverðar upplýsingar um
samræmi milli námsárangurs og stærðar bekkjardeilda,
milli einkunnargjafar og útkomu stöðluðu prófanna o. fl.
Ýmis önnur verkefni hafa verið tekin til rannsóknar
fyrir tilmæli og í samvinnu við áður nefnda aðila, svo sem
athugun á erfiðleikum við lestramám og réttritun, aga
í barnaskólum, könnun á, hvernig kennarar una við starf
sitt og starfskilyrði.
Vorið 1955 hóf rannsóknarstofnunin útgáfu á ritverk-
um á ensku, „Research Bulletins”, til þess að gera helztu
niðurstöður af rannsóknum stofnunarinnar aðgengilegar
erlendum lesendum og skapa þannig tengsl milli sænskra
og erlendra vísindamanna.
Fræðslumálastjórnin sænska beitir sér einnig fyrir fjöl-
þættri tilraunastarfsemi á þessu sviði, þar sem m. a. er
unnið að hóflegri samræmingu í skólunum hvað viðkemur