Menntamál - 01.04.1956, Side 78
72
MENNTAMÁL
Við höfum að undanförnu búið við góðæri. Það eru
sígild sannindi, að meiri manndóm og þroska þarf til
þess að þola góða en erfiða daga. Ef okkur á ekki að hnigna
á öllum sviðum í kjötkatladýrkun hins nýja aldarfars
verðum við að muna, að það er eilíft vandamál starfandi
kynslóða, hvernig uppeldinu verði bezt hagað og breyta
samkvæmt því.
Kennurum boðið til Danmerkur.
í s. 1. mánuði bárust kennarasamtökunum boð frá dönskum kenn-
urum og Norræna félaginu í Danmörku, og er þetta heimboð fram-
hald af hinum gagnkvæmu heimsóknum kennara, er átt liafa sér stað
undanfarin ár, milli Danmerkur og íslands.
Að þessu sinni bjóða Danir 15 kennurum frá barna- og gagnfræða-
skólum, og er tekið fram, að liópurinn skuli skipaður 5 konum og
10 karlmönnum. Tekið verður á móti kennurunum í líaupmanna-
höfn 1. ágúst, og er gert ráð fyrir mánaðar dvöl í landinu.
Fyrstu 5 dagana dvelja kennararnir í Kaupmannahöfn og fara það-
an ferðir um Sjáland. Dagana 5.—19. ágúst dvelur hópurinn 1 Sönder-
borg, og verður hann þar með dönskum starfsbræðrum, er þar eru
fyrir á námskeiði, er nefnist „14 dage paa höjskole."
Síðan verða kennararnir gestir á lieimilum danskra kennara úti á
landi, en dvelja svo sem gestir starfsbræðra sinna 1 Kaupmannahöfn
viku áður en liorfið er lieim.
Dvöl og ferðir í Danmörku er þátttakendum að kostnaðarlausu, en
ferðir milli landa eru á eigin kostnað.
Undirbúningsnefnd er þegar skipuð, og eru í lienni fræðslumála-
stjórinn, framkvæmdastjóri Norrænafélagsins og 3 fulltrúar frá kenn-
arasamtökunum.
Umsóknir um þátttöku skulu hafa borizt fyrir 25. april n. k.
Heimilisfang nefndarinnar er í Fræðslumálaskrifstofunni. Merkið
umsóknir: Danska kennaraheimboðið.