Menntamál - 01.04.1956, Side 121
MENNTAMÁL
115
NORRÆNN NÁMSSTJÓRAFUNDUR
Félag sænkra námsstjóra gekkst fyrir fundi í Södertálje 27. og
28. marz s. 1. Auk sænkra námsstjóra og formanna fræðsluráða sóttu
fundinn skólamenn frá öllum Norðurlöndunum. Frá íslandi voru
Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi og Magnús Gíslason námsstjóri.
Fundinn setti Rosén fræðslumálastjóri Svíþjóðar.
Umræður hófust með erindi Yngve Norinders um Skólakerfi og
vinnubrögð i skólum og erindi Anne Marie Nörvig: Endurbœtur
á skólum.
Önnur viðfangsefni voru: Skólabyggingar og véltcekni i þágu
kennslu. Bæði þessi efni eru hvarvetna ofarlega á baugi í umræðum
kennara, og mikið að þeim unnið.
Á fundinum í Södertálje var m. a. lögð mikil áherzla á aukna hag-
sýni í gerð skólahúsa, nýtingu rúmsins, greiðar samgöngur og bætt
vinnuskilyrði í skólunum.
Áherzla var lögð á notagildi skuggamyndavéla og handhæga gerð
þeirra. Var talið æskilegt, að hentug sýningavél væri i hverri kennslu-
stofu. Einnig var rætt um fleiri gerðir sýnigagna, segulbönd o. fl.
Fundarmenn hlýddu á leikþætti og tónlist nemanda og skoðuðu
verksmiðjur m. a. Scania-Vabis bílasmiðjurnar.
NÁMSKEIÐ OG FUNDIR ERLENDIS.
Kennaranámskeið við Lundúnaháskóla.
Uppeldisdeild Lundúnaháskóla gengst fyrir námskeiði 11,—14. júlí
n. k. Efnt lrefur verið til námskeiðs þessa fyrir tilmæli kennara og
annarra, er fást við nám í kennslufræðum eða fræðslumálum. Með
námskeiðinu skal kynna skóla- og uppeldismál í Bretlandi með fyrir-
lestrum, viðræðum og komum í skóla og aðrar uppeldisstofnanir.
Fræðslan fer fram í liúsnæði háskólans. Sérstök fræðslustofa og bóka-
sýning munu auðvelda þátttakendum að kynnast nýjungum í skóla-
roálum.
hess er vænzt, að þátttakendur dvelji í heimavist, en skylda er það
ekki.
Fyrirspurnir og bréf um námskeiðið skal senda til The Adviser to
Teacliers, University of London Institute of Education, Malet Street,
London, W. C. 1.
Ætlazt er til, að væntanlegir þátttakendur skrifi eftir umsóknar-