Menntamál


Menntamál - 01.04.1961, Page 46

Menntamál - 01.04.1961, Page 46
36 MENNTAMÁL gera það að vopni í lífsbaráttunni. Þessi tvö sjónarmið hafa svo sett mismunandi mikinn svip á ljóðsöguna eftir atvikum. Fulltrúar hinnar svokölluðu óháðu listar hafa ástund- að sem mest hlutleysi 1 ytri baráttu samtíðar sinnar og hefur þá skáldskapur þeirra stundum orðið svo persónu- bundinn og innhverfur að einungis takmarkað ,,úrval“ lesenda hefur getað tileinkað sér hann að nokkru ráði. Fulltrúar tilgangslistarinnar hafa hinsvegar oft staðið í „andskotaflokkinum miðjum“ og reynt að gera efni og form Ijóðsins sem tilkvæmilegast alþýðu manna. En í raun réttri er hér aðeins um stigmun en ekki neinn eðlismun að ræða. Einu gildir hversu djúpt skáldið vill kafa í leyndardóma sjálfs sín og tilverunnar — það getur samt ekki sloppið úr mannheimi. Það neyðist til að taka einhverja afstöðu gagnvart umheiminum og gerir það raunar öldungis eins fyrir því þótt það einangri sig í fíla- beinsturni. Skáldið getur aldrei orðið hlutlaust gagnvart manninum. Maðurinn eltir það inn í turninn og krefst reikningsskila. Þegar allt kemur til alls eru skáldið og maðurinn tvær hliðar á sama furðuverkinu. Því verður ekki með nokkru móti neitað að margur djúp- sær og nýstárlegur skáldskapur hefur orðið til á einhvers- konar flótta frá harkalegum veruleika mannlífsins. En hitt er jafnvíst að því aðeins hafa hin mestu ljóð orðið lýsandi vitar í andlegu lífi þjóða að skáldið hefur glímt án afláts við manninn og örlög hans. Sem sagt: dæmin virðast sanna að efni og búningur ljóða taki meiri eða minni stakkaskiptum, svo sem aðrar listgreinir, í órjúfandi tengslum við breytingar mann- félagsins. Uppi hafa verið allskonar „íkur“ og „ismar“ sem ég kann varla að nefna og allar hafa þessar stefnur getið af sér einhvern fullgildan skáldskap. Upphaflegu spurningunni verður því varla svarað að neinu gagni. En væri þá ekki reynandi að takmarka hana á þessa lund:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.